Erlent

Metfjöldi undirskrifta fyrir rannsókn á fjölmiðlaveldi Murdoch

Kjartan Kjartansson skrifar
Rupert Murdoch hefur haft gríðarleg áhrif á fjölmiðlalandslagið í Ástralíu, Bretland og Bandaríkjunum undanfarin ár og áratugi.
Rupert Murdoch hefur haft gríðarleg áhrif á fjölmiðlalandslagið í Ástralíu, Bretland og Bandaríkjunum undanfarin ár og áratugi. Vísir/EPA

Fleiri en hálf milljón Ástrala hefur skrifað undir áskorun um að stjórnvöld komi á fót nefnd til að rannsaka meinta misnotkun fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch á markaðsráðandi stöðu sinni. Fyrrverandi forsætisráðherra úr röðum Verkamannaflokksins hóf undirskriftasöfnunina.

News Corp Australia á fjórtán af tuttugu og einu dag- og helgarblaði sem er gefið út í stærri borgum Ástralíu. Til viðbótar á fyrirtækið útvarpsstöðvar, Sky News og fréttavefinn news.com.au. Fyrirtækið er einnig útgefandi einu staðarblaðanna í Queensland, Suður-Ástralíu, Tasmaníu og Norðursvæðunum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Áskorunin til ástralska þingsins sem Kevin Rudd, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, efndi til er þess efnis að þingið stofni sérstaka rannsóknarnefnd til að kanna „misnotkun fjölmiðlaeinokunar í Ástralíu, sérstaklega Murdoch-miðla“. Nefndin rannsaki einnig vaxandi fábreytni í fjölmiðlaflóru landsins.

Rudd hefur lýst áhrifum fjölmiðla Murdoch á Ástralíu sem „krabbameini á lýðræðinu okkar“. Malcolm Turnbull, annar fyrrverandi forsætisráðherra, skrifaði undir áskorunina en hann hefur einnig verið gagnrýninn á áhrif fjölmiðla Murdoch á tvo stærstu stjórnmálaflokka Ástralíu.

Kevin Rudd, fyrrverandi forsætisráðherra, hóf undirskriftasöfnunina gegn miðlum Murdoch.Vísir/EPA

News Corp og Murdoch hafa ekki brugðist við áskoruninni en dagblöð þeirra hafa birt fjölda neikvæðra umfjallana um Rudd undanfarnar vikur. Blöðin lagði gegn endurkjöri Rudd á sínum tíma en hann var forsætisráðherra 2007 til 2010 og aftur árið 2013.

Fréttaflutningur miðla News Corp er á köflum umdeildur. Þeir hafa ítrekað fjallað um loftslagsbreytingar af völdum manna á villandi hátt, þar á meðal um gróðureldana miklu síðasta sumar, og nú nýlega um kórónuveirufaraldurinn.

Búist er við því að undirskriftalistinn verði lagður fyrir þingið en hvorki þingi né ríkisstjórn er skylt að aðhafast sérstaklega vegna hans. Hvorki ríkisstjórn Frjálslynda flokksins né Verkamannaflokkurinn sem leiðir stjórnarandstöðuna hefur lýst yfir stuðningi við áskorunina.


Tengdar fréttir

20th Century Fox heyrir sögunni til

Bandaríski fjölmiðlarisinn Walt Disney hefur ákveðið að hætta endanlega notkun á einu frægasta nafninu í skemmtanaiðnaðnum – 20th Century Fox.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×