Hyundai i20 vann aftur Gullna stýrið Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. nóvember 2020 07:00 Hyundai i20.
Hin nýja kynslóð Hyundai 120 hlaut í liðinni viku Gullna stýrið hjá þýska dagblaðinu Bild am Sonntag sem birt er í nýjasta tölublaði Auto Bild. Með verðlaunum hlaut i20 þá umsögn að vera sá besti í verðflokki undir 25 þúsundum evra, segir í fréttatilkynningu frá BL. Stjórnandi bílaprófana hjá Auto Bild segir nýjan i20 í sérflokki í sínum fólksbílaflokki og gefi fyrirrennara sínum ekkert eftir þegar kemur að gæðum og skemmtilegum aksturseiginleikum, en þess má geta að fráfarandi kynslóð i20 hlaut einnig Gullna stýrið árið 2015. Nýr i20 er væntanlegur til BL í mars. Afturendi á nýjum Hyundai i20. „Með nýjum i20 hefur Hyundai sett nýjar viðmiðanir í hönnun og framleiðslu fólksbíla í sínum verðflokki þar sem hönnuðirnir hafa lagt mikla vinnu í öll smáatriðin. Maður finnur greinilega hversu lipur bíllinn er í allri meðhöndlun og 48 volta tvinnkerfið er til fyrirmyndar. Hyundai i20 er eldsnöggur af stað ólíkt því sem maður á að venjast í hefðbundnum túrbóvélum, og sjö gíra gírskiptingin vinnur sérlega vel með tvinntækninni,“ segir Andreas May, yfirmaður prófana og tæknimála hjá Auto Bild. Undir þetta tók Tom Drechsler, aðalritstjóri bílaumfjallana hjá BILD Group, sem segir það ekki fara framhjá neinum sem kynni sér nýjan i20 hversu miklum framförum Hyundai hefur áorkað á umliðnum árum varðandi hönnun, akstursupplifun og þægindi sem mörg hver séu óvenjuleg í þessum verðflokki. Eins og áður segir er nýr i20 væntanlegur til BL í mars og verða verðflokkar og útbúnaður kynnt er nær dregur frumsýningunni.
Vistvænir bílar Mest lesið Grunaður um að nauðga konu þrisvar sömu nóttina Innlent Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Erlent „Gætir verið pirrandi við matarborðið en það er þess virði“ Innlent „Aldrei fyrirgefanlegt þegar það er farið svona með opinbert fé“ Innlent Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Erlent Vilja rýmri reglur um veiðar fjögurra fuglategunda Innlent Þúsundir hafi orðið af milljónum Innlent Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Erlent Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Erlent Tvö pör handtekin og afskipti höfð af tvímenningum Innlent