Árið 1944 stofnar Christian Kjöthöllina, fyrirtækið sem bræðurnir reka enn. „Unga fólkið var að flytjast á mölina og fékk oft sent kjöt frá foreldrum sínum úti á landi. Það þurfti að reykja þetta kjöt og verka,“ segir Sveinn um upphaf starfseminnar. „Já og herinn kallaði líka á slátrun,“ segir Björn.
Bræðurnir fóru snemma að vinna með föður sínum. Um tíu ára aldur giska þeir á, ef ekki fyrr Sveinn er fæddur árið 1943 og Björn árið 1951.
„Maður var nýttur í það sem hægt var,“ segir Sveinn og brosir.
Í helgarviðtali Atvinnulífsins heyrum við söguna á bakvið fjölskyldufyrirtækið Kjöthöllin.
Roy Rogers á sunnudögum
Christian Christensen fékk stöðuheitið fóðurmeistarinn þegar hann hóf störf á Reykjum í Mosfellsdal. Þar kynnist hann Ólöfu Pálínu Ólafsdóttur og fella þau hugi saman.
Hjónin hófu sinn búskap á Klömbrum. Með tíu kýr og ræktun á grænmeti.
„Magnús Júlíusson, eða Maggi Júll, var formaður fjáreiganda í Reykjavík og aðstoðarlandlæknir. Hann fékk úthlutað Klambratún árið 1924 undir fjárbúskap. Hann var orðinn þreyttur á því en þekkti Guðmund Jónsson aflakóng og útgerðarmann á Reykjum og þannig barst það til pabba að Klambra gæti hann keypt,“ segir Sveinn og bætir við: „Maggi Júll var frá Klömbur í Vesturhópi og þaðan kemur nafnið Klambratún.“
Sveinn man vel eftir sveitalífinu í kringum rekstrinum fyrstu árin og Björn minnist túnanna sem góðu leiksvæði, ekki síst fyrir fótbolta. Umhverfið var annað í þá daga. Til dæmis voru þarna hestamenn sem leigðu sér aðstöðu.
Og frá unga aldri þótti það sjálfsagt að bræðurnir hjálpuðu til.
Síðan fengum við stundum bíómiða á Roy Rogers eftir að hafa hjálpað til í reykhúsinu á sunnudögum,“
segir Sveinn stoltur um fyrstu launin.

Flutningar
Í fyrstu var verslun í hluta húsnæðis fjölskyldunnar á Klömbrum og slátrun í hluta hússins. Nokkrum árum eftir stofnun keypti Christian húsnæði á Rauðarárstíg fyrir búðarreksturinn.
Til viðbótar við slátrun á Klömbrum var starfsrækt reykhús. Það var sérstaklega vinsælt hjá laxveiðimönnum sem þangað komu til að reykja afla sumarsins.
Síðar kom að því að borgin vildi Klambra í burtu.
Reykjavíkurborg gerði eignarnám en það var allt gert í góðu því borgin vildi breyta svæðinu í almenningsgarð,“
segir Sveinn til útskýringar á því hvers vegna farið var í flutninga.
Í kjölfarið var nafni túnsins breytt í Miklatún.
Sveinn segir fyrsta bréfið frá borginni hafa borist fjölskyldunni árið 1959. Það hafi þó verið veittur dágóður frestur fram að flutningum.
Reyndar hafði kjötvinnslan flust á Háteigsveg 2 árið 1953. Eftir að ákvörðun um flutninga lá fyrir, var ráðist í byggingu verslunarhúss í Skipholti 70. Frá árinu 1966 hefur Kjöthöllin rekið þar kjötvinnslu og verslun.
Árið 1982 keypti Kjöthöllin eignirnar að Háaleitisbraut 58-60 og hefur síðan þá einnig starfsrækt bæði verslun og skrifstofu þar.
„Hvar er hesturinn minn?“
Bræðurnir segja vissulega margar gamlar sögur til. Sumar sögurnar hafi þeir sjálfir nýheyrt af. Nýverið fengu þeir til dæmis bréf frá Dana sem sagði að faðir hans hefði sem ungur maður unnið hjá Christian á Klömbrum.
Í bréfinu segir hann þá sögu frá föður sínum að einn daginn hafi fín frú komið ríðandi á hesti að Klömbrum. Þar bað hún um að fá að geyma hestinn á meðan hún færi í bæinn.
Vildi svo illa til að þennan dag var einmitt verið að slátra hrossum.
Vinnumennirnir vissu að hrossin væru tvö en þegar þeir fóru út að sækja þau til slátrunar, stóðu þrír hestar á hlaði.
Varð úr að þeim var öllum slátrað. Stuttu síðar kemur fína frúin aftur og spyr: „Hvar er hesturinn minn?“
Uppi varð fótur og fit þegar upp komst um hvernig hafði farið fyrir hestinum.
Menn héldu að það yrðu einhver dýr eftirmál, pabbi þyrfti að borga sekt eða eitthvað. En það bjargaði víst málunum að frúin var í Hvítasunnusöfnuðinum og túlkaði atvikið á endanum þannig að það hefði verið guðs vilji að hesturinn færi þennan dag,“
segir Björn.

Sumt breytist, annað ekki
Eftir áratuga starf er ekki úr vegi að spyrja aðeins út í hefðir og venjur landans, hvort þær hafi mikið breyst.
Til dæmis fyrir jólin?
Bræðurnir segja svo ekki vera.
Svínahamborgarahryggurinn er alltaf mjög vinsæll á jólaborðið. Hangikjötið er aðeins á undanhaldi en lambið er að koma sterkt inn aftur.
Eftir að hætt var að selja rjúpur í verslunum, hafa vinsældir hreindýrakjöts aukist fyrir jólin.
Síðustu þrjú til fimm árin hefur Wellington steikin verið að vaxa í vinsældum. Það sama gildi um kalkúninn sem er sérstaklega vinsæll fyrir áramótin.
„En í dag er allt úrbeinað“ segir Björn.
Sumt er nánast horfið. Til dæmis saltkjötið sem eitt sinn var mjög mikið selt. Þá seljist ekki súpukjöt eins og áður var.
„Fólk biður í dag um beinlausa bita í súpu,“ segir Sveinn um breytta tíma.
Bræðurnir segja það hafa verið stórt skref í rekstrinum þegar hamborgaravélarnar voru keyptar og Kjöthöllin hóf að selja en að selja hamborgara til veitingastaða og hótela.
Þá hafi það líka breyst að nú sé fólk farið að grilla mikið á sumrin. Lengi voru grill ekki svona mikið í heimaeigu nema einstaka kolagrill og þá helst nýtt á ferðarlögum.
Marineríngin varð vinsæl fyrir um áratug síðan. Fram að þeim tíma var allt þurrkryddað.
En hvernig kom það til að Kjöthöllin fór svona snemma að sérhæfa sig í sænsku sykursöltuðu jólaskinkuna, var það vegna tengingar föður ykkar út?
„Nei aldeilis ekki,“ svara bræðurnir í kór.
Að þeirra sögn kom þessi hefð þannig til að Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands kom að máli við föður þeirra einhvern tímann á tímabilinu 1945-50.
Sigurður var giftur sænskri konu og langaði að gleðja hana fyrir jólin með sykursaltaðri skinku að sænskum sið.
Úr varð að Christian vann skinkuna fyrir Sigurð.
Það eru fjölskyldur sem halda alltaf upp á jólin með sænsku skinkuna og eins og oft er með jólamatinn þá ganga hefðirnar á milli kynslóða,“
segir Sveinn.
Þó segjast bræðurnir sjálfir halda í danskar rætur. Þessar rætur skýri til dæmis út hvers vegna Kjöthöllin leggi áherslu á paté og kæfur.

Fjórða kynslóðin
Bræðurnir tóku við rekstrinum af föður sínum árið 1974.
Sveinn sér um Kjöthöllina á Háaleitisbraut og þar sá Unnur Birgisdóttir eiginkonan hans lengi um innkaup, uppgjör á kössum og fleira. Í dag starfa hjá Kjöthöllinni einnig dóttir Sveins og Unnar, Anna Björk. Þá starfa tveir synir Önnu Bjarkar hjá fyrirtækinu. Kristófer Jónason í fullu starfi og Arnþór Jónason í hlutastarfi með námi.
Björn sér um búðina og kjötvinnsluna í Skipholti. Þá hefur eiginkona hans, Sigfríður Friðþjófsdóttir séð um bókhald fyrirtækisins í áratugi. Dóttir Björns og Sigfríðar, Sigríður starfar einnig hjá fyrirtækinu og sonur hennar Jóhann Birnir Guðmundsson.
Að sögn bræðranna sjá dæturnar Anna Björk og Sigríður um allt það helsta sem snýr að daglegum rekstri búðanna, s.s. innkaup og fleira.
Fleiri dætur Sveins og Björns hafa starfað í fyrirtækinu því samtals eiga bræðurnir sjö dætur. Þær ólust allar upp við að vinna í fyrirtækinu á sumrin og um jól. „Það var alltaf gott að geta kallað þær til,“ segir Björn.
Og það sama gildir um fjórðu kynslóðina því til viðbótar við Jóhann Birni, Kristófer og Arnþór hafa fleiri barnabörn starfað í Kjöthöllinni um sumar eða í skólafríum.
Það er gott að fá aukapening hjá afa,“
segir Sveinn og bræðurnir brosa hinir ánægðustu með þróunina.

„Nú er bara hægt að loka“
Þegar Sveinn og Björn eru spurðir hvaða tímabil þeir minnast sem erfiðasta tímabilið, líta þeir á hvorn annan og eru hugsi um stund.
Eftir smá vangaveltur eru þeir sammála um að það hafi ekki verið tímabilið í kjölfar bankahruns. „Því þá áttum við eignir og vorum skuldlausir því við höfðum þanið okkur fyrr, þegar verðbólgan stóð sem hæst og við keyptum eignirnar,“ segir Sveinn.
„Covid hefur ekki heldur komið illa við okkur,“ segir Björn og bætir við: „Fólk getur ekki farið út að borða og gerir því kannski oftar vel við sig heima fyrir.“
En hvaða tími er það þá?
„Ætli það sé ekki helst þegar stórmarkaðirnir voru að opna?“ spyr Björn og Sveinn kinkar kolli. Jú, það er helst það tímabil sem olli áhyggjum.
Þá sögðu nú bara einhverjir að við gætum örugglega lokað. Sérstaklega þegar Hagkaup opnaði í Kringlunni,“
segir Björn og bætir við: „Við vorum búnir að horfa upp á tugi kjötverslana leggja upp laupana einni af annarri þannig að þetta voru eðlilegar áhyggjur.“
„En við höfðum svo sem hlustað á þetta áður,“ segir Sveinn og rifjar það upp að þegar Egilskjör opnaði á Laugaveginum og þótti mjög fín.
„Þá var sagt við pabba að nú gæti hann bara lokað.“
Bræðurnir hafa því séð tímanna tvenna í rekstrinum. Lengi vel var lítið um frí en í dag segjast þeir ágætlega settir og ekki geta kvartað.
Nú er vertíðin fyrir jólin og mikið að gera.
„Við erum með svona númerasystem. Fólk pantar jólasteikina og sækir 22. og 23.desember,“ segir Björn stoltur og Sveinn bætir við: „Já og þetta hefur fólk gert hjá okkur í áratugi.“
GAMLA MYNDIN
