Handbolti

Aron Rafn stóð vaktina í öruggum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Aron Rafn Eðvarðsson
Aron Rafn Eðvarðsson vísir/vilhelm

Aron Rafn Eðvarsson stóð á milli stanganna hjá Bietigheim í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Bietigheim fékk þá Wilhelmshavener í heimsókn og tóku heimamenn fljótt öll völd á vellinum.

Aron Rafn lokaði rammanum og fékk aðeins á sig sex mörk í fyrri hálfleiknum en staðan í leikhléi var 15-6, Bietigheim í vil.

Fór að lokum svo að Bietigheim vann öruggan sjö marka sigur, 25-18.

Aron Rafn stóð allan tímann í markinu og varði ellefu skot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×