Innlent

Þór sendur til að sækja vélarvana Lagarfoss

Samúel Karl Ólason skrifar
Áætlað er að Þór komi með Lagarfoss í togi til Reykjavíkur á gamlársdag.
Áætlað er að Þór komi með Lagarfoss í togi til Reykjavíkur á gamlársdag. Vísir/Vilhelm

Varðskipinu Þór er nú siglt í átt að flutningaskipinu Lagarfossi sem er vélarvana. Flutningaskipið er um 230 sjómílur suðvestur af Garðskaga og varð vélarvana í gær. Til stendur að draga skipið til hafnar í Reykjavík.

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að Eimskip, sem rekur Lagarfoss, hafi haft sambandi við gæsluna um hádegisbil í gær. Þá hafi bilunin verið tilkynnt og spurt hvort mögulegt væri að Þór gæti dregið skipið til hafnar.

Þegar ljóst varð að viðgerð um borð í Lagarfossi hafi ekki borið árangur vað áhöfn varðskipsins kölluð út í gærkvöldi. Léti skipið úr höfn í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt.

Gott veður er á svæðinu og er áhöfn Lagarfoss ekki talin í neinni hættu.

Búist er við því að varðskipið verði komið að Lagarfossi í fyrramálið. þar að auki er búist við að það muni taka allt að tvo sólarhringa að draga skipið til hafnar.

Í yfirlýsingunni segir að ætla megi að skipin verði komin til Reykjavíkur á gamlársdag.

Varðskipið Þór er nú á leið í átt að flutningaskipinu Lagarfossi sem varð vélarvana um 230 sjómílur suðvestur af...

Posted by Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard on Monday, 28 December 2020



Fleiri fréttir

Sjá meira


×