Aron meiddur og missir af HM Anton Ingi Leifsson skrifar 2. janúar 2021 16:38 Aron er á meiðslalistanum og verður ekki með Íslandi í janúar. TF-Images/Getty Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, verður ekki með liðinu á HM í Egyptalandi í janúar vegna meiðsla. Þetta staðfesti HSÍ nú rétt í þessu en Aron missir af mótinu vegna meiðsla á hné.
Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi Arons í liðinu en hann er fyrirliði liðsins ásamt því að leika með spænska risanum, Barcelona. Aron hefur skorað 576 mörk í 148 landsleikjum og hefur einungis misst af einu stórmóti síðan hann hóf feril sinn með landsliðinu. „Eftir læknisskoðun hjá læknum landsliðsins er það ljóst að Aron verður ekki leikfær nú í janúar,“ segir í tilkynningu frá HSÍ en ekki hefur verið kallað á annan mann í stað Arons. Fyrir ekki svo löngu sagði Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, að óvíst væri hvort að Aron gæti leikið í leikjunum í undankeppni EM og HM í Egyptalandi í janúar. Aron lék þó í síðustu viku með Barcelona í Final 4 úrslitakeppninni í Meistaradeildinni í handbolta og jukust þá vonir Íslendinga að hann yrði klár í slaginn í janúar. Svo verður ekki en HSÍ staðfesti, eins og áður segir, rétt í þessu að Aron verði ekki með liðinu í leikjunum í janúar. Íslenska landsliðið leikur tvo leiki gegn Portúgal í undankeppni EM áður en liðið heldur svo til Egyptalands þar sem þeir eru einmitt í riðli með Portúgal, Alsír og Marokkó. Fréttin hefur verið uppfærð. Ein breyting hefur orðið á landsliðshóp Íslands fyrir leikina gegn Portúgal og HM í Egyptalandi. Aron Pálmarsson,...Posted by HSÍ - Handknattleikssamband Íslands on Laugardagur, 2. janúar 2021
Handbolti HM 2021 í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Sjá meira