Patrekur skaut Marokkómenn í kaf Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2021 11:01 Patrekur Jóhannesson skoraði níu mörk í eina landsleik Íslands og Marokkó. epa/ATTILA KISBENEDEK Ísland mætir Marokkó í síðasta leik sínum í F-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta karla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Íslendingar eru í 2. sæti F-riðils með tvö stig og komast í milliriðil svo lengi sem þeir tapa ekki leiknum í kvöld. Marokkómenn hafa tapað báðum leikjum sínum á HM. Þetta er aðeins í annað sinn sem Ísland og Marokkó mætast frá upphafi. Eini leikur liðanna til þessa var á HM í Frakklandi 2001. Ísland 31-23 Marokkó, HM 2001 Íslendingar hófu riðlakeppnina á HM 2001 á því að tapa fyrir heimsmeisturum Svía, 24-21, en unnu svo Portúgali í öðrum leik sínum, 22-19. Í þriðju umferð riðlakeppninnar mætti Ísland svo Marokkó. Íslenska liðið átti í vandræðum í fyrri hálfleik en var þó þremur mörkum yfir að honum loknum, 16-13. Ísland byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti, gekk hreint til verks og kláraði leikinn. Mestur varð munurinn tólf mörk, 29-17. Ísland gaf eftir á lokakaflanum og Marokkó lagaði stöðuna. Sigurinn var þó aldrei í hættu og á endanum munaði átta mörkum á liðunum, 31-23. Patrekur Jóhannesson fór mikinn í leiknum, skoraði níu mörk og gaf fjölda stoðsendinga. Einar Örn Jónsson skoraði sex mörk úr jafnmörgum skotum og Ólafur Stefánsson skilaði einnig sex mörkum. Guðmundur Hrafnkelsson, sem var fyrirliði Íslands í leiknum, varði vel í markinu, alls 22 skot. Sigurinn á Marokkó var síðasti sigur Íslands á HM 2001. Íslendingar fengu eitt stig út úr síðustu tveimur leikjunum í riðlakeppninnar og töpuðu svo fyrir Júgóslövum, 27-31, í sextán liða úrslitunum. Mörk Íslands: Patrekur Jóhannesson 9, Einar Örn Jónsson 6, Ólafur Stefánsson 6/4, Guðjón Valur Sigurðsson 4, Róbert Julian Duranona 3, Ragnar Óskarsson 2, Róbert Sighvatsson 1.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira