Veður

„Ákaflega hlýtt loft“ yfir landinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hitaspákort Veðurstofunnar lítur sérstaklega vel út fyrir Austurland.
Hitaspákort Veðurstofunnar lítur sérstaklega vel út fyrir Austurland. Veðurstofa Íslands

Það er ákaflega hlýtt loft yfir landinu nú og í nótt hefur verið allt að fimmtán stiga hiti í hnjúkaþey á Tröllaskaga og á Austfjörðum að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Þar kemur jafnframt fram að í dag sé útlit fyrir áframhaldandi hlýindi og svipað veður og var í gær. Spáð er suðvestanátt og súld eða rigningu á vestanverðu landinu og með suðurströndinni en bjartviðri norðaustantil.

Þá er enn byljóttur vindur á norðanverðu Snæfellsnesi en það dregur smám saman úr honum þegar líður á morguninn.

„Á morgun og á laugardag er veðrið í stórum dráttum svipað með suðvestanátt og úrkomu, en heldur kólnandi, einkum á norðvestanverðu landinu en lengst af þurrt norðautsantil. Á sunnudag gengur yfir landi alldjúp lægð með hvassviðri og talsverðri rigningu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Suðlæg átt, 5-10 m/s á Suðurlandi annars víða 8-15 m/s. Rigning eða súld með köflum, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Fer að rigna á Norðvesturlandi í nótt. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast A-til. Vestan og suðvestan 5-13 á morgun. Stöku skúrir eða slydduél norðvestantil og kólnandi veður en áframhaldandi ringing sunnantil og síðar á Austfjörðum annað kvöld.

Á föstudag:

Suðvestan 8-13 m/s en 10-15 norðvestantil og við suðausturströndina. Rigning eða súld sunnan og vestanlands en skýjað með köflum norðan og austantil. Styttir upp vestantil síðdegis og lægir en fer að rigna á Austfjörðum. Hiti 4 til 9 stig en kólnar norðantil um kvöldið.

Á laugardag (vorjafndægur):

Vestlægar eða breytilegar áttir 5-13 m/s rigningu sunnan - og austanlands en slyddu til fjalla. Skýjað með köflum eða bjartiviðri í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig. Vaxandi sunnanátt vestast um kvöldið með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri.

Á sunnudag:

Suðvestan hvassviðri og talverð rigning en úrkomulítið um landið austanvert. Hiti 2 til 7 stig. Vestlægari vindátt og skúrir eða él síðdegis og kólnandi, fyrst á vestantil á landinu en áfram þurrt að kalla austantil.

Á mánudag:

Minnkandi suðvestanátt með éljum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×