Ómar Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. apríl 2021 13:04 Ómar Ingi skoraði fimm mörk í dag. Uwe Anspach/Getty Ómar Ingi Magnússon og félagar hans í Magdeburg tóku á móti lærisveinum Guðmundar Guðmundssonar í Melsungen í þýska handboltanum í dag. Ómar Ingi skoraði fimm mörk og hjálpaði liði sínu að vinna fjögurra marka sigur, 31-27. Arnar Freyr Arnarsson er í liði Melsungen, en hann komst ekki á blað í dag.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en mestur var munurinn þrjú mörk þegar Magdeburg komust í 11-8. Ómar Ingi, sem hefur verið sjóðandi heitur í seinustu leikjum, náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik. Hann klikkaði til að mynda á tveim vítum í hálfleiknum og komst ekki á blað. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 15-13, magdeburg í bvil. Í seinni hálfleik náði Ómar sér aðeins á strik og endaði leikinn með fimm mörk, ásamt því að búa til nokkur góð mörk fyrir liðsfélaga sína. Heimamenn létu forystuna aldrei af hendi og lönduðu að lokum góðum fjögurra marka sigri. Magdeburg er þá í fjórða sæti deildarinnar með 36 stig eftir 24 leiki. Melsungen er enn í því níunda með 25 stig. View this post on Instagram A post shared by SC Magdeburg (@scmagdeburg)
Þýski handboltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira