Gummi Gumm getur orðið bikarmeistari í fyrsta sinn sem þjálfari í dag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. júní 2021 13:01 Guðmundur Guðmundsson tók við Melsungen í febrúar 2020. Hann stýrir liðinu ásamt því að vera þjálfari íslenska karlalandsliðsins. getty/Swen Pförtner Guðmundur Guðmundsson getur orðið bikarmeistari í fyrsta sinn á þjálfaraferlinum þegar Melsungen mætir Lemgo í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í Hamborg í dag.
Um er að ræða úrslitaleik bikarkeppninnar fyrir tímabilið 2019-20 en ekki náðist að klára hana í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Bikarkeppnin fyrir tímabilið 2020-21 var hins vegar felld niður. Melsungen sigraði Hannover-Burgdorf, 27-24, í undanúrslitum í gær og komst þar með í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Arnar Freyr Arnarsson var ekki á meðal markaskorara hjá Melsungen. Í hinum undanúrslitaleiknum vann Lemgo óvæntan sigur á Kiel, 29-28. Bjarki Már Elísson var markahæstur í liði Lemgo með sex mörk. Guðmundur hefur verið lengi að og átt afar farsælan feril í þjálfun. Hann á hins vegar enn eftir að verða bikarmeistari á þjálfaraferlinum. Þegar Guðmundur þjálfaði á Íslandi kom hann liði fjórum sinnum í bikarúrslit. Það gerðist fyrst 1990 en Víkingur tapaði þá fyrir Val, 25-21. Ári seinna komst Víkingur aftur í bikarúrslit en laut í lægra haldi fyrir ÍBV, 26-22. Árið 1998 kom Guðmundur Fram í úrslit bikarkeppninnar. Frammarar töpuðu þá fyrir Valsmönnum, 25-24, í einum frægasta og umdeildasta bikarúrslitaleik sögunnar. Guðmundur kom Fram svo aftur í bikarúrslit 2007. Þá tapaði liðið fyrir Stjörnunni með tíu marka mun, 27-17. Sem leikmaður átti Guðmundur mjög góðu gengi að fagna í bikarkeppninni en hann vann hana fjórum sinnum í röð með Víkingi (1983-86).
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira