Innlent

Fjöl­skyldu­faðir á fer­tugs­aldri vann stóra vinninginn

Atli Ísleifsson skrifar
Vinningurinn hljóðaði upp á tæpa 1,3 milljarða.
Vinningurinn hljóðaði upp á tæpa 1,3 milljarða. Vísir/Vilhelm

Heppinn fjölskyldufaðir á fertugsaldri hefur gefið sig fram við Íslenska getspá eftir að hafa hreppt langstærsta lottóvinning Íslandssögunnar í gærkvöldi; rúmlega 1.270 milljónir króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Þar segir að þessi lukkulegi miðaeigandi búi á höfuðborgarsvæðinu en fyrstu viðbrögð hans í gærkvöldi hafi verið að fara í góðan göngutúr.

„Að göngunni lokinni deildi hann fréttinni með konunni sinni en áætlar að segja foreldrum og nánustu fjölskyldu góðu fréttirnar í eigin persónu á næstu dögum. Aðspurður segist vinningshafinn enn ekki hafa gert upp við sig hvernig haldið verður upp á stóra vinninginn en hann segist munu hafa skynsemina að leiðarljósi og hefur þegar þegið boð Íslenskrar getspár um fjármálaráðgjöf.

Eins og fram hefur komið var 2. vinningur einstaklega hár í gær vegna kerfisbreytinga sem ætlað er að auka líkur á stórum vinningum. Hámark hefur verið sett á fyrsta vinning, rúmlega 3.600 milljónir, og því stækkar 2. vinningur nú hraðar en ella. Þannig má búast við að í næstu viku verði hann um það bil 370 milljónir króna en stærðin hleypur venjulega á nokkrum tugum milljóna.“


Tengdar fréttir

Ís­lendingur vann tæplega 1,3 milljarða

Íslenskur þátttakandi í Vikinglottó vann í kvöld langhæsta vinning sem komið hefur til Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×