Hreggnasi semur um Grímsá til 10 ára Karl Lúðvíksson skrifar 22. júní 2021 08:27 Hreggnasi hefur framlengt leigu á Grímsá Mynd: Hreggnasi FB Grímsá er ein af vinsælustu laxveiðiám vesturlands og þegar áinn fór í útboð nýlega sást greinilega að það eru margir sem renndu hýru auga til hennar.
Útboðið fór þó þannig að samið var við Hreggnasa sem hefur verið með ánna á leigu í mörg ár og hafa þeir byggt upp stórann hóp viðskiptavina sem halda mikilli tryggð við ánna og sækja hana heim ár eftir ár. Hér fyrir neðan er fréttatilkynning frá Hreggnasa af þessu tilefni: "Undirritaður hefur verið samningur milli Veiðifélagsins Hreggnasa og Veiðifélags Grímsár og Tunguár til næstu 10. ára. Grímsá og Tunguá eru án efa meðal mestu laxveiðiáa landsins, en samstarf þessara aðila nær allt til ársins 2004 þegar að Hreggnasi tók við sölu veiðileyfa af landeigendum sjálfum. Um er að ræða eitt allra lengsta viðskiptasamband milli leigutaka og veiðifélags á Íslandi. Grímsá í Borgarfirði hefur langa samfellda sögu stangaveiða, en þær ná aftur til ársins 1862, þegar að enskir veiðimenn fóru að venja þangað komur sínar. Meðalveiði sl. 20 ára eru um 1.300 laxar á ári, en við ána stendur eitt glæsilegasta veiðihús landsins. Á samningstímanum verður ráðist í verulegar endurbætur á Veiðihúsinu Fossási og aðstaða gerð enn glæsilegri og aukið verður við fiskrækt með margvíslegum hætti."
Stangveiði Mest lesið 200 laxar komnir úr Staðarhólsá Veiði Ytri Rangá komin í 3000 laxa Veiði Góður gangur í Elliðaánum Veiði 122 stórlaxar á fyrsta degi í Eystri Rangá Veiði Þar sem 50 punda laxar rífa í flugurnar Veiði Ein skæðasta haustflugan í sumar Veiði Gönguseiðin yfirgefa árnar í þúsundatali Veiði Fer Laxá á Ásum yfir 1000 laxa? Veiði Brynjudalsá komin í 50 laxa Veiði 25 urriðar veiddust opnunardaginn í Laxárdal Veiði