Flest pör hafa einhverskonar kerfi þegar kemur að heimilishaldinu. Á meðan annar aðilinn tekur að sér eldamennskuna græjar hinn jafnvel húsverkin.
Sum heimilisstörf og hlutverk innan sambanda hafa verið talin frekar karllæg eða kvenlæg þó svo að tímarnir séu svo sannarlega breyttir.
Karlarnir grilla á meðan konurnar græja salatið. Konan þvær þvottinn og karlinn hengir upp hillur. Konan skiptir á rúmunum og karlinn þrífur bílinn.
Er þetta allt kannski úrelt?
Talandi um bílinn...
Ætli það sé ennþá algengara að karlinn keyri oftast þegar pör ferðast saman í bíl?
Spurning vikunnar er að þessu sinni kynjaskipt og beint til allra þeirra sem eru í gagnkynhneigðum samböndum.
Hvor keyrir bílinn?
Karlar:
Konur:
Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar hér.