Ný útgáfa Thom Yorke af Creep lítur dagsins ljós Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. júlí 2021 10:29 Thom Yorke er búinn að hugsa Creep upp á nýtt. Getty/Jim Dyson Thom Yorke, söngvari hljómsveitarinnar Radiohead, hefur gefið út nýja útgáfu af Creep, vinsælasta lagi hljómsveitarinnar. Um er að ræða níu mínútna langt remix þar sem mjög hefur verið hægt á gangi lagsins.
Lagið var upphaflega endurgert af Yorke í mars á þessu ári sem hluti af tískusýningu japanska fatahönnuðarins Jun Takahashi, en hefur nú formlega verið gefið út. „Útbúið fyrir minn kæra vin Jun Takahashi, og heim sem virðist vera að snúast á hvolf,“ skrifar Yorke á Twitter. Here is my re-imagined remix version of Creep for 2021, 30 years later.Done for my friend Jun Takahashi, and for a world that is seemingly turning upside down. https://t.co/mDXCbYJwhWhttps://t.co/rKRykiuZOs— Thom Yorke (@thomyorke) July 13, 2021 Creep kom upphaflega út árið 1993 og skaut bresku hljómsveitinni Radiohead á stjörnuhiminninn, og er það án efa þekktasta lag Radiohead. Nýja útgáfan er sem fyrr segir níu mínútna löng og mun hægari en upprunalega útáfan. Ku þetta vera 2021 útgafan af laginu ef marka má hinn nýja titil, Creep (Very 2021 Rmx). Lítið hefur heyrst frá Radiohead frá því að tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar í kjölfar útgáfu síðustu breiðskífu hennar, A Moon Shaped Pool, lauk, en platan kom út árið 2016. Á því tónleikaferðalagi kom Radiohead meðal annars eftirminnilega við á Íslandi. Yorke hefur hins vegar haft í ýmis horn að líta á undanförnum árum, nú síðast með hljómsveitinni Smile sem hann stofnaði ásamt Jonny Greenwood, gítarleikara Radiohead og fleirum, en hljómsveitin frumflutti nýtt efni á nettónleikum í maí síðastliðnum. Heyra má nýju útgáfuna af Creep hér fyrir neðan og þar fyrir neðan má heyra upprunalegu útgáfuna.
Tónlist Tengdar fréttir Radiohead opnar fjársjóðskistuna Breska hljómsveitin Radiohead hefur opnað fjársjóðskistuna og gert mikinn fjölda tónleikaupptaka, tónlistarmyndbanda, æfingarefnis og listaverka, svo dæmi séu tekin, aðgengilegan á einum stað. 21. janúar 2020 12:30 Fyllerí með Björk varð til þess að Thom Yorke fór að hugsa vel um röddina í sér Thom Yorke, söngvari bresku hljómsveitarinnar Radiohead segir að hann fyrst tekið það alvarlega að hann þyrfti að hugsa um röddina í sér eftir að hafa farið á fyllerí með Björk. 23. september 2019 20:15 Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni. 5. maí 2017 13:30 Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30 Það varð allt vitlaust þegar Radiohead tók Creep - Myndband Tónleikagestir tóku vel undir. 17. júní 2016 00:01 Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar Og það breytti öllu. 28. janúar 2016 10:30 Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira
Radiohead opnar fjársjóðskistuna Breska hljómsveitin Radiohead hefur opnað fjársjóðskistuna og gert mikinn fjölda tónleikaupptaka, tónlistarmyndbanda, æfingarefnis og listaverka, svo dæmi séu tekin, aðgengilegan á einum stað. 21. janúar 2020 12:30
Fyllerí með Björk varð til þess að Thom Yorke fór að hugsa vel um röddina í sér Thom Yorke, söngvari bresku hljómsveitarinnar Radiohead segir að hann fyrst tekið það alvarlega að hann þyrfti að hugsa um röddina í sér eftir að hafa farið á fyllerí með Björk. 23. september 2019 20:15
Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni. 5. maí 2017 13:30
Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30
Það varð allt vitlaust þegar Radiohead tók Creep - Myndband Tónleikagestir tóku vel undir. 17. júní 2016 00:01