Spánverjar náðu bronsinu eftir háspennuleik Valur Páll Eiríksson skrifar 7. ágúst 2021 10:00 Alex Dujshebaev var öflugur í leiknum í morgun. Dean Mouhtaropoulos/Getty Images Spánn hlaut bronsverðlaun í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Þeir spænsku lögðu Egypta naumlega, 33-31, í leiknum um þriðja sæti mótsins.
Þeir spænsku höfðu tapað 27-23 fyrir Dönum í undanúrslitum keppninnar á meðan Egyptar töpuðu með sömu markatölu fyrir Frökkum. Danir og Frakkar mætast í úrslitum síðar í dag. Egyptar byrjuðu betur í leiknum í morgun og komust 4-2 yfir. Þeir komust hins vegar ekki aftur yfir í fyrri hálfleiknum þar sem Spánn var með eins marks forystu framan af, á milli þess sem Egyptar jöfnuðu leikinn. Á síðari hluta hálfleiksins slitu þeir spænsku sig lítillega frá og voru með þriggja marka forskot í hálfleik, 19-16. Egyptar unnu hratt á þá spænsku í upphafi síðari hálfleiks og skoruðu fimm mörk gegn tveimur til að jafna leikinn, 21-21. Síðari hálfleikurinn spilaðist þá eins og stór hluti þess fyrri þar sem Spánverjar voru ávallt skrefi á undan, einu marki yfir á meðan Egyptar jöfnuðu. Egyptar náðu aldrei að taka næsta skref og komust aldrei yfir í síðari hálfleik. Egyptar minnkuðu muninn í 32-31 þegar um hálf mínúta var eftir en þeir spænsku skoruðu síðasta mark leiksins til að vinna 33-31 sigur. Spánn hlýtur því brons á leikunum og jafna þeir þar með sinn besta árangur. Spánverjar hafa aldrei komist í úrslit á leikunum en hljóta brons í fjórða skipti eftir að hafa fengið slíkt árin 1996, 2000 og 2008. Hægri hornamaðurinn Aleix Gómez var markahæstur í spænska liðinu með átta mörk en gamlinginn Antonio García Robledo skoraði sex mörk. 37 ára jafnaldri hans, Ahmed El-Ahmar skoraði átta mörk fyrir Egypta.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira