Frakkland Ólympíumeistari í fyrsta sinn Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2021 10:01 Þær frönsku hafa aldrei orðið Ólympíumeistarar fyrr. Maja Hitij/Getty Images Kvennalandslið Frakklands í handbolta varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Rússlandi í úrslitum í Tókýó í Japan. Frakkland vann tvöfalt í handboltanum á leikunum.
Þær frönsku höfðu unnið lið Svíþjóðar í undanúrslitum á meðan Rússland hafði betur gegn Noregi til að tryggja sæti sitt í úrslitum. Noregur vann öruggan sigur á þeim sænsku í leik um bronsmedalíuna í nótt. Í úrslitaleiknum voru Frakkar ákveðnari aðilinn og voru jafnan með tveggja til þriggja marka forystu framan af fyrri hálfleiks. Rússland komst 7-6 yfir snemma í hálfleiknum, en það var í eina skiptið sem þær rússnesku komust yfir í hálfleiknum, fyrir utan í stöðunni 3-1 snemma leiks. Frakkland var ávallt skrefinu á undan og staðan í hálfleik 15-13 fyrir Frakkland. Þær frönsku skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks til að komast 16-13 yfir en Rússland svaraði með þremur mörkum í röð til að jafna 16-16. Þá skildu hins vegar leiðir. Frakkland skoraði sex mörk og komst 22-16 yfir og þær frönsku litu ekki um öxl í kjölfarið. Þær rússnesku sáu ekki til sólar eftir það og vann Frakkland 30-25 sigur. Frakkland er því Ólympíumeistari kvenna í handbolta í fyrsta sinn. Pauletta Foppa og Allison Pineau voru markahæstar í liði Frakka með sjö mörk hvor en hjá Rússum var Polina Vedekhina markahæst, einnig með sjö mörk. Liðið stígur í fótspor karlaliðs landsins sem vann Ólympíugull í gær eftir sigur á Dönum í úrslitum. Frakkland hefndi þá fyrir tap sitt í úrslitum leikanna árið 2016, en þá lagði rússneska liðið þær frönsku.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Frakkland Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira