Katrín Halldóra syngur lög Jóns Múla á fyrstu sólóplötunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. ágúst 2021 10:31 Katrín Halldóra Sigurðardóttir skrifaði undir samning við Þjóðleikhúsið fyrr í sumar. Aðsent Söng- og leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir vinnur nú að útgáfu á sólóplötu sem kemur út í október. Upptökur fara fram 16. og 17.ágúst í Stúdíó Sýrlandi.
Á plötunni syngur hún lög Jóns Múla í glænýjum útsetningum eftir Hauk Gröndal. Samstarf Katrínar Halldóru og Hauks hófst á jazzhátíð árið 2018 þar sem flest þessara laga voru útsett og flutt á tónleikum. Nú hafa nokkur lög bæst við síðan þá og því var ákveðið að loka hringnum og gefa þau út á plötu í tilefni þess að Jón Múli hefði orðið hundrað ára í ár svo þetta er i raun heiðursplata. „Lög Jóns Múla við texta bróður hans Jónasar Árnasonar eru í sérstöku uppáhaldi, þetta eru lög úr vinsælum leiksýningum eða „söngdansar“ eins og Jón Múli kallaði lögin sem mörg hver eru orðin ein þekktustu dægurlög þjóðarinnar,“ segir Katrín Halldóra. Hún hefur sjálf sungið þessi lög síðan hún man eftir sér. Páll Óskar syngur með söngkonunni tvo dúetta á plötunni, þau hafa áður sungið saman og það kemur alltaf einstaklega vel út þar sem raddir þeirra passa fullkomlega saman. Margir hafa beðið spenntir eftir nýju efni frá Katrinu Halldóru og má því með sanni segja að mikil eftirvænting ríki eftir plötunni sem kemur út i október og verður henni fylgt eftir með útgáfutónleikum sem verða auglýstir á næstu misserum. Hljómsveitina skipa Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á bassa, Eric Quick, á trommum, Haukur Gröndal á saxafóna og klarínett, Hjörtur Ingvi Jóhansson á píanó, Ólafur Jónsson á saxafóna og klarínett og Snorri Sigurðsson á trompet.
Tónlist Tengdar fréttir Katrín Halldóra til liðs við Þjóðleikhúsið Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur samið við Þjóðleikhúsið og bætist nú í leikarahóp hússins. 8. júní 2021 09:01 Katrín Halldóra syngur Ó, helga nótt Borgarleikhúsið hefur boðið landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember hefur verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins glatt með fjölbreyttum atriðum. 24. desember 2020 07:01 Mest lesið „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Lífið 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér Lífið Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Lífið Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Lífið Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lífið samstarf „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Ástin sigrar í nýrri herferð gegn ofbeldi Tíska og hönnun Fleiri fréttir Árný Margrét ómaði á tískupöllum í New York Írar sniðganga Eurovision taki Ísrael þátt „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Katrín Halldóra til liðs við Þjóðleikhúsið Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur samið við Þjóðleikhúsið og bætist nú í leikarahóp hússins. 8. júní 2021 09:01
Katrín Halldóra syngur Ó, helga nótt Borgarleikhúsið hefur boðið landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember hefur verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins glatt með fjölbreyttum atriðum. 24. desember 2020 07:01
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“