Piltarnir keppa um 5.-9. sæti eftir tap fyrir Spánverjum Valur Páll Eiríksson skrifar 18. ágúst 2021 20:30 Benedikt Gunnar Óskarsson var valinn maður leiksins úr íslenska liðinu í kvöld. Mynd/handbolti.is Íslenska drengjalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri tapaði 32-25 fyrir liði Spánar í milliriðli á EM U19 sem fram fer í Króatíu.
Ísland var án stiga í riðlinum fyrir leikinn og víst að það kæmist ekki áfram í undanúrslit keppninnar eftir naumt tap fyrir Svíþjóð í fyrri leik sínum í milliriðli. Spánn gat aftur á móti farið í undanúrslit með sigri. Spánverjar voru með yfirhöndina allt frá upphafi í dag og leiddu 16-12 eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik. Íslenska liðið náði aldrei að brúa bilið og juku Spánverjar á forystu sína í upphafi síðari hálfleiks. Sjö marka tap varð að lokum niðurstaðan, 32-25 fyrir Spán. Spánn fer því ásamt Slóveníu úr milliriðli Íslands í undanúrslit. Svíar fylgja Íslandi hins vegar í fjögurra liða umspil um 5. sæti keppninnar. Ísland mætir Portúgal í undanúrslitum um 5. sætið í næsta leik klukkan 13:15 á föstudag en Svíar mæta Dönum í hinni viðureigninni. Mörk Íslands í dag: Benedikt Gunnar Óskarsson 5, Gauti Gunnarsson 5, Guðmundr Bragi Ástþórsson 4, Andri Már Rúnarsson 3, Þorsteinn Leó Gunnarsson 2, Andri Finnsson 2, Arnór Ísak Haddsson 1, Símon Michael Guðjónsson 1, Arnór Viðarsson 1, Jóhannes Berg Andrason 1. Mörkin eru fengin af handbolti.is.
Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Adam Ægir mættur til KA Íslenski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira