Haukar sigruðu Ragnarsmótið á Selfossi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. ágúst 2021 20:46 Ríkjandi deildarmeistarar Hauka sigruðu Ragnarsmótið á Selfossi í dag. Leikið var til úrslita á Ragnarsmótinu í handbolta á Selfossi í dag, en spilað var um fyrsta, þriðja og fimmta sætið. Ríkjandi deildarmeistarar Hauka höfðu betur gegn Fram í úrslitaliknum, 27-20.
Ragnarsmótið á Selfossi er haldið ár hvert til minningar um Ragnar Hjálmtýsson sem lést í bílsslysi árið 1988, þá aðeins 18 ára gamall. Ragnar þótti einn af efnilegri handboltamönnum Selfoss, en þetta var í 33. sinn sem mótið var haldið. Fyrsti leikur dagsins var viðureign Stjörnunar og Aftureldingar sem léku um fimmta sætið. Stjarnan fór inn í hálfleikinn með tveggja marka forskot, 15-13. Stjarnan var sterkari aðilinn í síðari hálfleik og fór að lokum með fimm marka sigur af hólmi. Lokatölur 31-26, þar sem Hafþór Már Vignisson og Leó Snær Pétursson skoruðu sx mörk hvor fyrir þá bláklæddu. Árni Bragi Eyjólfsson og Hamza Kabouti skoruðu átta mörk hvor fyrir Aftureldingu. Það var Suðurlandsslagur í öðrum leik dagsins þegar að gestgjafarnir frá Selfossi mættu ÍBV. Jafnt var þegar flautað var til hálfleiks, 16-16, en Eyjamenn náðu fljótt fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik. Selfyssingar náðu aldrei að brúa það bil og ÍBV vann að lokum fimm marka sigur, 30-25. Nökkvi Snær Óðinsson skoraði átta mörk í liði Eyjamanna, en í liði heimamanna voru það Alexander Már Egan og Ragnar Jóhansson sem voru atkvæðamestir með sjö mörk hvor. Lokaleikur dagsins var úrslitaviðureign Hauka og Fram. Sá leikur náði aldrei að verða spennandi, en Haukar skoruðu sex af fyrstu átta mörkum leiksins. Þegar komið var að hálfleik var staðan orðin 17-6. Haukar náðu mest 14 marka forskoti í stöðunni 22-8, en þá slökuðu þeir aðeins á sóknarleiknum. Lokatölur 27-20 og Haukar fara því með bikarinn í farteskinu yfir Hellisheiðina.
Haukar UMF Selfoss Fram ÍBV Stjarnan Afturelding Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira