Steinar Fjeldsted kennir krökkum að rappa Ritstjórn Albúmm.is skrifar 8. september 2021 14:30 Steinar Fjeldsted er mikill reynslubolti þegar það kemur að rappi, textagerð og framkomu. Steinar Fjeldsted sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Quarashi hefur svo sannarlega nóg að gera um þessar mundir en fyrir skömmu stofnaði hann tónlistarskólann PÚLZ. Bú er komið að því að Steinar ætlar að miðla reynslu sinni og vera með námskeið í rapp, textagerð og framkomu. Steinar Fjeldsted sem flestir þekkja úr hljómsveitinni Quarashi hefur svo sannarlega nóg að gera um þessar mundir en fyrir skömmu stofnaði hann tónlistarskólann PÚLZ. Bú er komið að því að Steinar ætlar að miðla reynslu sinni og vera með námskeið í rapp, textagerð og framkomu. „Mig hefur lengi langað að vera með svona námskeið og það er virkilega gaman að geta miðla reynslu sinni. Mér þykir ótrúlega gaman að vinna með krökkum og ég ætla að leggja allt í þetta námskeið.” Hljómsveitin Quarashi. Steinar er lengst til hægri. Farið verður yfir lengd takta (bars) og hvernig textinn passar taktinum hverju sinni. Við skoðum hvernig á að beita orðum á réttum stöðum (punchlines), fara frá rappi yfir í viðlag, flæði kannað og grunnur lagður að haldbærri kunnáttu á rímum. Einnig verður farið yfir framkomu, en rapp hefur ávallt verið tónlist tjáningar og er framkoma stór partur af henni. Tilbúnir taktar verða í boði Púlz sem henta sérstaklega byrjendum. Einnig verður hægt að búa til sína eigin takta með aðstoð leiðbeinanda, sem passa við textann og flæðið. Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að ná skilning og færni í textagerð, samsetningu orða og rappi/flæði og framkomu Námskeiðið fer fram dagana 13. – 17. september og kostar 16.900 kr fyrir alla vikuna. Námskeiðið er fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9 – 12 ára og frem fram í Faxafeni 10 í Reykjavík kl 16:15 – 17:15. Hægt er að skrá á námskeiðið á vefsíðu www.pulz.is og HÉR Fylgstu með PÚLZ á Facebook og Instagram Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið