Komið er að seinni undanúrslitum þáttarins. Í þeim fyrri slógu Víkingarnir Kristall Máni og Adam Ægir út tónlistarmennina Bjarka Bomarz og Doctor Victor.
Framleiðendur Galið lofa því að eitthvað óvænt komi fram í þessum þætti en sá síðasti væntanlegur í næstu.
„Já, í þessum næstum því síðasta þætti kemur smá „twist“ í endann. Sjón er sögu ríkari. Það er óhætt er að segja að það sé komin mikil alvara í leikinn enda til mikils að vinna. Playstation 5 frá Senu og forláta GALIÐ faraldsbikar,“ segir Steinar Fjeldsted, ritstjóri Albumm.
Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við Snorri Bros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.