Royal Never Give Up og Hanwha Life upp úr C-riðli Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. október 2021 23:01 Royal Never Give Up tryggði sér sigur í C-riðli. Lance Skundrich/Riot Games Inc. via Getty Images Kínverska liðið Royal Never Give Up tryggði sér sigur í C-riðli Heimsmeistaramótsins í League of Legends í dag og er því komið í átta liða úrslit. Með þeim upp úr riðlinum fer Hanwha Life frá Suður-Kóreu.
Hanwha Life hóf daginn á öruggum sigri gegn PSG Talon, áður en komið var að taplausum Royal Never Give Up gegn Fnatic, en þeir síðarnefndu voru enn í leit að sínum fyrsta sigri. Eftir að hafa verið með forystuna fyrsta hálftímann fór að fjara undan hjá Royal Never Give Up. Fnatic gekk á lagið og vann að lokum nokkuð óvæntan sigur sem hélt vonum þeirra á lífi. HUGE WIN FOR @FNATIC AS THEY TAKE DOWN @RNG! #Worlds2021 pic.twitter.com/v3DbSPN9ln— LoL Esports (@lolesports) October 17, 2021 Royal Never Give Up fékk svo tækifæri strax í næsta leik til að koma sér aftur á beinu brautina þegar þeir mættu PSG Talon í þriðju viðureign dagsins. Þeir nýttu tækifærið vel, og með sigrinum var sæti í átta liða úrslitum tryggt. Í fjórðu viðureign dagsins náðu liðsmenn Fnatic ekki að fylgja eftir góðum sigri á Royal Never Give Up þegar liðið mætti Hanwha Life. Tap Fnatic þýddi að liðið átti ekki lengur möguleika á að komast upp úr riðlinum. After their loss against @HLEofficial, @FNATIC out of #Worlds2021 Quarterfinal contention. pic.twitter.com/LGpTIhmf6d— LoL Esports (@lolesports) October 17, 2021 Hanwha Life og Royal Never Give Up mættust svo í fimmtu viðureign dagsins, en með sigri gátu þeir síðarnefndu tryggt sér efsta sæti riðilsins. Liðsmenn Hanwha Life voru þó ekki tilbúnir að gefa það svo auðveldlega eftir, og unnu að lokum virkilega mikilvægan sigur. Sigurinn þýddi það að liðin þurftu að mætast aftur í bráðabana um fyrsta sæti riðilsins. Áður en það gat gerst mættust Fnatic og PSG Talon í algjörlega þýðingarlausum leik. Fnatic gat reyndar jafnað PSG Talon í þriðja sæti með sigri, en PSG Talon tók forystuna snemma og vann að lokum nokkuð öruggan sigur. Hanwha Life og Royal Never Give Up mættust þá að lokum í annað sinn í dag í sjöundu og seinustu viðureign dagsins í bráðabana um fyrsta sæti C-riðils. Hanwha Life tók forystuna snemma, og hélt henni fyrstu 35 mínútur leiksins. Royal Never Give Up stóð hins vegar heldur betur undir nafni og þeir snéru leiknum sér í hag. Eftir tæplega 45 mínútur af æsispennandi League of Legends voru það liðsmenn Royal Never Give Up sem stóðu uppi sem sigurvegarar í C-riðli. FIRST PLACE SECURED:@RNG win the tiebreaker against @HLEofficial! #Worlds2021 pic.twitter.com/IrhC7Ryj9s— LoL Esports (@lolesports) October 17, 2021 Seinasti dagur riðlakeppninnar fer fram á morgun, en þá verður D-riðill kláraður. Það er kannski við hæfi að enda á þeim riðli, en þar er allt galopið. Gen.G og LNG eru jöfn í fyrsta sæti með tvo sigra og eitt tap, en MAD Lions og Team Liquid eru skammt undan með einn sigur og tvö töp hvort. Eins og áður verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu frá Heimsmeistaramótin frá klukkan 11:00 á morgun á Stöð 2 eSport.
Rafíþróttir League of Legends Tengdar fréttir T1 og Edward Gaming tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Gamla stórveldið T1 hrifsaði efsta sæti B-riðils af Edward Gaming á Heimsmeistaramótinu í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll í dag. Bæði liðin fara þó upp úr riðlinum. 16. október 2021 23:01 Ótrúlegur viðsnúningur tryggði Cloud9 upp úr A-riðli með heimsmeisturunum Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA tryggðu sig örugglega upp úr A-riðli á Heimsmeistaramótinu í League og Legends í dag, ásamt Cloud9. Þeir síðarnefndu fóru bakdyramegin upp úr riðlinum eftir að hafa tapað fyrstu þrem leikjum sínum. 15. október 2021 23:01 Mest lesið Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Handbolti Dagskráin í dag: Besta kvenna, Formúlu 1, hafnabolti, fótbolti og golf Sport Fleiri fréttir Dusty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viðureign Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Óvenju mörg ný andlit í Rocket League Grimm barátta og sviptingar í Fortnite Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Klutz réði ekkert við GoldDiggers Dusty enn á toppnum eftir tvær umferðir Metþátttaka í kvennadeildinni í Valorant Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum Spennan magnast í Fortnite-samfélaginu Tölvuleikir auðvelda krökkum að kynnast og upplifa sögur Stærðin og áhorfið eru leynivopn Counter Strike Fólk á öllum aldri keppir í Fortnite Einbeittur sigurvilji hjá nýliðunum í Ljósleiðaradeildinni Gríðarlegar sviptingar á undanmóti Íslandsmótsins í netskák Ljóngrimmir keppendur mætast á Íslandsmótinu í netskák Háhraðahressleiki og hugsjónaorka hjá Next Level Gaming Sjá meira
T1 og Edward Gaming tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Gamla stórveldið T1 hrifsaði efsta sæti B-riðils af Edward Gaming á Heimsmeistaramótinu í League of Legends sem fram fer í Laugardalshöll í dag. Bæði liðin fara þó upp úr riðlinum. 16. október 2021 23:01
Ótrúlegur viðsnúningur tryggði Cloud9 upp úr A-riðli með heimsmeisturunum Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA tryggðu sig örugglega upp úr A-riðli á Heimsmeistaramótinu í League og Legends í dag, ásamt Cloud9. Þeir síðarnefndu fóru bakdyramegin upp úr riðlinum eftir að hafa tapað fyrstu þrem leikjum sínum. 15. október 2021 23:01