Hækka lífeyrisgreiðslur sjóðsfélaga um tíu prósent Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2021 09:36 Hækkunin er sögð tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hefur styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Vísir/Vilhelm Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) hyggst hækka áunnin lífeyrisréttindi í sameignardeild sjóðsins um tíu prósent sem leiðir til samsvarandi hækkunar lífeyrisgreiðslna. Sjóðsfélagar mega einnig eiga von á eingreiðslu sem nemur að meðaltali 76 þúsund króna um áramót.
Í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum segir að hækkunin miðist við síðastliðin áramót. Hækkunin sé tilkomin vegna góðrar ávöxtunar eigna undanfarin ár sem hafi styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. „Hækkun greiðslna elli-, örorku- og makalífeyris kemur til framkvæmda í nóvember. Samhliða mun sjóðurinn greiða í eingreiðslu uppsafnaða hækkun frá síðastliðnum áramótum. Eingreiðslan nær til um tuttugu og eitt þúsund sjóðfélaga og nemur rúmum 1,6 milljörðum króna eða að meðaltali um 76 þúsund krónum fyrir hvern lífeyrisþega, allt eftir fjárhæð áunninna lífeyrisréttinda hvers og eins. Sjóðfélagar sem fá einnig greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins eru hvattir til þess að huga að því hvort tilefni sé til að uppfæra tekjuáætlun hjá stofnuninni. Afrakstur farsæls rekstrar Það er stjórn og starfsmönnum lífeyrissjóðsins sérstök ánægja að tilkynna sjóðfélögum um hækkun áunninna lífeyrisréttinda sem byggir á góðri ávöxtun eigna undanfarin ár. Meðalraunávöxtun eigna síðustu 10 ára er 6,7%, síðustu 20 ára 4,5% og síðustu 30 ára 5,4%,“ segir í tilkynningunni.
Lífeyrissjóðir Eldri borgarar Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira