Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég er oftast vaknaður rétt fyrir klukkan sjö en stilli klukkuna á sjö til öryggis. Það eru engar óþarfa áhættur teknar í tryggingabransanum.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég er markvisst að reyna að venja mig af því að rjúka beint í símann á morgnana til að kanna tölvupósta og vefmiðla.
Margir flottir stjórnunarráðgjafar hafa í ríkari mæli lagt til að síminn sé ekki staðsettur á náttborðinu heldur geymdur í öðru herbergi. Það er örugglega ekki hollt að hafa það sem sitt fyrsta og síðasta verk að vafra í símanum.
Úr stofuglugganum heima er ég með útsýni yfir Faxaflóann og Snæfellsnesið. Það er seiðandi sjón og gott að byrja daginn með því að taka sólarhæðina.
Má ekki segja að það sé í ætt við núvitund eða hugleiðslu?“
Ertu byrjaður, eða búinn, að ákveða jólagjöf fyrir frúnna?
Öll fjölskyldan verður á Ítalíu þessi jól að heimsækja yngsta soninn og unnustu hans sem þar búa og ef forsjónin lofar nýfæddan son þeirra sem koma á í heiminn á allra næstu dögum.
Með í för verður fyrsta barnabarnið sem fæddist í júní á þessu ári.
Eins og nærri má geta ríkir mikil eftirvænting hjá okkur öllum að verja saman gæðastundum í Pisa. Þær gerast ekki betri jólagjafirnar.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Sem betur fer er í mörg horn að líta og margir boltar á lofti hjá okkur, annað væri verra. Stærstu daglegu verkefnin mín eru að leggja mitt að mörkum til að viðhalda þeirri góðu vegferð sem við í Sjóvá erum á.
Það geri ég best með því að vera til staðar, hvetja alla til dáða og gefa af mér um leið og ég þigg til baka frá mínu frábæra samstarfsfólki. Í Sjóvá segjum við gjarnan að það séu um 190 ástæður fyrir því að við náum árangri, en það er sirka starfsmannafjöldinn.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Um þriðjungur af mínum tíma er fastmótaður á fyrirfram ákveðnum fundum, þriðjungur er svo bókaður eftir óskum annarra um fundi en ég reyni að halda um þriðjungi óbókuðum til að sinna öðrum samskiptum og verkefnum sem mikilvægt er að sinna eða kunna að koma uppá með stuttum fyrirvara.
Undanfarin ár er hefur mér svo tekist betur og betur að víkja ekki frá þeim tíma sem fer í ræktina, nokkur hádegi og í lok dags.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Stundum getur fyrri hluti kvölds farið í yfirlestur gagna eða annað vinnutengd en annars finnst mér gott á ná einum góðum sjónvarpsþætti og horfa svo á kvöldfréttir í sjónvarpinu. Ég stefni svo alla jafna að því að vera lagstur upp í um klukkan ellefu.“