„Það eru engin leiðindi milli mín og Craig“ Atli Arason skrifar 11. desember 2021 08:01 Sigurður Gunnar Þorsteinsson Bára Dröfn Körfuboltasamfélagið á Íslandi var mikið að velta því fyrir sér af hverju Sigurður Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Tindastóls, var ekki valinn af Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, í síðasta landsliðshóp gegn Hollendingum og Rússum. Sigurður hefur að undanförnu ekki gefið kost á sér í landsliðið af persónulegum ástæðum en var þó tilbúinn í slaginn fyrir síðasta glugga ef kallið hefði komið. „
Ég hef ekki gefið kost á mér áður fram að þessu út af mismunandi ástæðum undanfarna glugga, en af hverju hann hafði ekki samband núna ætla ég ekki að giska á,“ sagði Sigurður í viðtali við Vísi. Craig hafði ekki samband við Sigurð fyrir síðasta landsliðsglugga til þess að athuga hvort hann væri tilbúin að vera með í því verkefni. „Ég bara ekki valinn. Ég hafði ekki möguleika um að gefa kost á mér eða ekki.“ Sigurður er með 12,8 stig, 7,3 fráköst og 1,5 stoðsendingar að meðaltali á leik á þessu tímabili í Subway-deildinni. Af þeim íslensku leikmönnum sem hafa spilað átta leiki eða fleiri er hann í topp fimm yfir framlagshæstu leikmönnum deildarinnar með 18,25 framlagspunkta. Sigurður segir að hann sé tilbúinn í slaginn, ef kallið kemur. „Já ég hefði gefið kost á mér,“ svaraði Sigurður, aðspurður út í það hvort hann hefði verið með í síðasta landsliðsglugga ef krafta hans væri óskað. Hann vill þó árétta að samband hans og Craig Pedersen er ekki slæmt og segist vera tilbúinn í næstu verkefni, ef kallið kemur. „Það eru engin leiðindi milli mín og Craig. Ef kallið kemur þá svara ég því,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Tindastóll Subway-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira