Fundu peninga á síðustu stundu og geta mætt Íslandi Sindri Sverrisson skrifar 21. desember 2021 15:00 Ísland valtaði yfir Litháen í undankeppni EM en Litháen var með nógu góðan árangur í 3. sæti riðilsins, á eftir Íslandi og Portúgal, til að komast einnig á mótið. vísir/vilhelm Landslið Litháens kemur til Íslands í byrjun nýs árs og spilar tvo vináttulandsleiki áður en liðið heldur á sitt fyrsta stórmót í handbolta karla í rúma tvo áratugi. Um tíma var útlit fyrir að liðið yrði ekki með á EM vegna skuldar.
Handboltamiðillinn Handball World fjallaði um það um síðustu mánaðamót að Litháen yrði mögulega ekki með á EM í janúar vegna þess að handknattleikssambandi þjóðarinnar hefði ekki tekist að greiða mótsgjaldið til EHF. Haft var eftir fyrrverandi framkvæmdastjóra litháíska sambandsins að það væri enn að burðast með skuldir frá þátttöku sinni á HM og EM fyrir meira en tveimur áratugum. Nú hefur norski miðillinn Nettavisen hins vegar eftir EHF að búið sé að greiða mótsgjaldið og fjármagna ferð Litháens til Íslands og á EM í kjölfarið. Áður var sá möguleiki fyrir hendi að Norðmenn fengju nýtt lið í sinn riðil á EM, í stað Litháens. Á heimasíðu handknattleikssambands Litháens má sjá að í þessum mánuði var gerður styrktarsamningur við veðmálafyrirtæki sem og samstarfssamningur við helstu íþróttaútvarpsrás landsins. Ísland og Litháen mætast í vináttulandsleikjum hér á landi 7. og 9. janúar, áður en haldið verður á EM. Ísland mætir Portúgal 14. janúar, Hollandi 16. janúar og Ungverjalandi 18. janúar. Tvö efstu liðin í riðlinum komast áfram í milliriðil sem verður einnig leikinn í Búdapest.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Enski boltinn Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Körfubolti Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Körfubolti „Ekkert eðlilegt að hlaupa ósofin í allan þennan tíma“ Sport Gekk ósátt af fundi KSÍ: „Hefði viljað að útkoman væri önnur“ Fótbolti Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Körfubolti Sjáðu vítið sem gerði Blika æfa: „Ótrúlegt að enginn af dómurunum sjái þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sjá meira