Ráðstafa 20 milljörðum króna til mannúðaraðgerða Heimsljós 14. janúar 2022 10:32 OCHA/Jolie-Laure Mbalivoto Talið að 274 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda. Martin Griffith yfirmaður samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) úthlutaði í gær 150 milljónum bandarískra dala – um 20 milljörðum íslenskra króna – úr neyðarsjóði Sameinuðu þjóðanna (CERF) til að styrkja vanfjármagnaðar aðgerðir í mannúðarmálum í þrettán ríkjum Afríku, Ameríku, Asíu og Miðausturlöndum. „Þessi fjármögnun er björgunarhringur fyrir þær milljónir manna sem búa við þær aðstæður að afleiðingar áfalla sem riðið hafa eru vanfjármagnaðar. Þetta er stærsta einstaka úthlutun CERF og kemur til með nýtast í þeirri viðleitni að viðkvæm samfélög fái brýnustu nauðsynjar. Fjármögnun neyðarsjóðsins frá framlagsríkjum gerir okkur kleift að ganga lengra og ná fljótt til þeirra sem mest þurfa á aðstoð okkar að halda,“ segir Griffith. Í frétt frá OCHA segir að í nýlegri spá á þörf fyrir alþjóðlegt mannúðarstarf á árinu sé talið að 274 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda, fleiri en marga síðustu áratugi. Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra stefna að því að veita 183 milljónum manna aðstoð, þeim sem búa við mest bágindi, og verja til þess 41 milljarði Bandaríkjadala. Þau þrettán ríki sem fá að þessu sinni úthlutað úr neyðarsjóðnum eru Sýrland, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Súdan, Mjanmar, Búrkína Fasó, Tjad, Níger, Haítí, Líbanon, Madagaskar, Kenía, Angóla og Hondúras. „Ég þakka öllum styrktaraðilum CERF sem með örlæti hafa gert þennan stuðning mögulegan. Saman gerum við gæfumuninn,“ segir Martin Griffith. Ísland er í hópi ríkja sem greiða árleg framlög til CERF samkvæmt rammasamningi en sjóðurinn er ein af fjórum áherslustofnunum Íslands í mannúðaraðstoð. CERF leggur áherslu á snemmtækar og skilvirkar aðgerðir til að draga úr manntjóni og neyð og grípur inn í þar sem neyðin er viðvarandi og gleymd. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Innlent Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Innlent Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Innlent Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent „Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“ Innlent Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Erlent „Nei, Áslaug Arna“ Innlent Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Innlent Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn Innlent Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Innlent Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Innlent Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Innlent Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent „Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“ Innlent Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Erlent „Nei, Áslaug Arna“ Innlent Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Innlent Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn Innlent Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent