Körfubolti

Elvar Már stigahæstur í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Elvar Már í leik með Antwerp Giants.
Elvar Már í leik með Antwerp Giants. HLN

Elvar Már Friðriksson og félagar í Antwerp Giants eru úr leik í belgísku bikarkeppninni í körfubolta eftir tíu stiga tap í kvöld.

Antwerp beið lægri hlut fyrir Oostende, 82-72, en Elvar og félagar töpuðu einnig fyrri viðureign liðanna og eru því úr leik en um var að ræða undanúrslitaviðureign.

Elvar Már fór mikinn í sóknarleik Antwerp að venju en hann skoraði sextán stig á tæpum hálftíma, auk þess að gefa sex stoðsendingar og taka fimm fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×