Erlent

Tón­listar­frum­kvöðullinn Jamal Edwards látinn

Árni Sæberg skrifar
Jamal Edwards varð einungis 31 árs gamall.
Jamal Edwards varð einungis 31 árs gamall. Joseph Okpako/Getty

Tónlistarfrumkvöðullinn Jamal Edwards er látinn aðeins 31 árs gamall. Tónlistarfyrirtæki hans SBTV kom mörgum stærstu stjörnum Bretlands á kortið.

Jamel Edwards stofnaði tónlistarfyrirtækið SBTV sem hefur komið stjörnum á borð við Ed Sheeran og Skepta á kortið. Þá naut hann mikilla vinsælda á Youtube.

Edwards var sæmdur heiðursorðunni MBE árið 2014 fyrir framlag sitt til breskrar tónlistar, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins um andlát hans.

Þá var hann andlit the Prince's trust sem eru góðgerðasamtök Karls Bretaprins sem hjálpa ungu fólki að stofna eigin fyrirtæki.

Jamal var sonur söng- og sjónvarpskonunnar Brendu Edwards.

Ekkert liggur fyrir enn um dánarorsök hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×