Loks töpuðu Viktor Gísli og félagar í GOG | Öruggt hjá Álaborg Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2022 20:30 Viktor Gísli Hallgrímsson í leik með íslenska landsliðinu. Sanjin Strukic/Getty Images Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og liðsfélagar hans í GOG töpuðu sínum fyrsta deildarleik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Liðið tapaði þá með þriggja marka mun gegn Ribe-Esbjerg, lokatölur 30-27.
Viktor Gísli spilaði ekki mikið í kvöld og átti langt í frá sinn besta leik. Hann varði aðeins eitt af þeim átta skotum sem hann fékk á sig. Tap kvöldsins var fyrsta tap GOG í deildinni á leiktíðinni en fyrir leikinn hafði liðið leikið 21 leik án þess að bíða ósigurs. Liðið hefur því nú unnið 20 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark er Álaborg vann sannfærandi sjö marka sigur á SönderjyskE, lokatölur 37-30. Þá varði Ágúst Elí Björgvinsson tvö skot af þeim fimm skotum sem hann fékk á sig er Kolding gerði jafntefli við Lemvig, lokatölur 26-26. GOG trónir sem fyrr á toppi deildarinnar með 41 stig, fjórum stigum meira en Álaborg sem hefur leikið leik meira. Kolding er í 12. sæti með 13 stig.
Handbolti Danski handboltinn Mest lesið Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Íslenski boltinn Saga Elvars er ótrúleg Sport Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Ísland - Svartfjallaland | Geta hefnt fyrir tapið á HM Handbolti Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Fleiri fréttir Ísland - Svartfjallaland | Geta hefnt fyrir tapið á HM Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Sjá meira