Rekstur handknattleiksdeildar Selfoss, sem verið hefur hálfgerð útungunarstöð fyrir íslenska karlalandsliðið eins og sást á EM í janúar, hefur verið afar erfiður. Samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins hafa þar mikið að segja.
Samkvæmt því sem fram kemur í samkomulagi félagsins við Árborg, sem bæjarráð ákvað í gær að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, var 16 milljóna króna tap hjá deildinni árið 2021. Fyrirséð tap fyrri hluta ársins 2022 er svo 5 milljónir króna.
Sveitarfélagið hefur nú ákveðið að bæta upp þetta tap með 21 milljónar króna styrk. Í staðinn fyrir styrkinn afsalar UMF Selfoss sér hins vegar eftirfarandi styrkjum til handknattleiksdeildarinnar á árunum 2023-2027:
- Styrk vegna starfsmanns deildarinnar sem árið 2021 var alls kr. 4.093.000
- Styrk vegna reksturs mfl. handboltadeildar sem árið 2021 var kr. 1.300.000
- Styrk vegna stöðu sem fyrirmyndarfélags, sem árið 2021 var kr. 500.000
Í samkomulagi Árborgar og Selfoss segir að ungmennafélagið muni fram til ársins 2027 þurfa að skila sveitarfélaginu skýrslu á sex mánaða fresti um rekstrarstöðu handknattleiksdeildarinnar. Þar segir jafnframt að allar deildir UMF Selfoss hafi veitt stjórn félagsins samþykki fyrir samkomulaginu.
Deild sem á hlut í fjórðungi landsliðsins
Í samkomulaginu segir að markmiðið með því sé að halda áfram því metnaðarfulla starfi sem á síðustu árum hefur meðal annars skilað Íslandsmeistaratitli og fjölda atvinnu- og landsliðsmanna.
„Handboltadeild UMF Selfoss er íbúum sveitarfélagsins sameiningartákn og færir þeim fyrirmyndir sem stuðla að heilbrigðara samfélagi og sterkri sjálfsmynd,“ segir í samkomulaginu sem bæjarstjórinn Gísli H. Halldórsson og Viktor S. Pálsson, formaður UMF Selfoss, kvitta undir.
Aðeins tæp þrjú ár eru síðan að karlalið Selfoss varð Íslandsmeistari í handbolta í fyrsta sinn. Eftir jafntefli gegn Gróttu í gær er liðið í 6. sæti Olís-deildarinnar og á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í vor.
Fimm leikmenn í 20 manna lokahópi Íslands á EM í janúar numu sín handboltafræði á Selfossi.
Kvennalið Selfoss er í 2. sæti Grill 66-deildarinnar, þremur stigum á eftir FH en með þrjá leiki til góða og á því góða möguleika á að komast aftur upp í efstu deild.