„Mögnuð upplifun að vinna svona verkefni með bestu vinkonum sínum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. mars 2022 12:31 Salóme Katrín, RAKEL & ZAAR gáfu saman út splittskífuna While We Wait og halda tónleika á morgun í Fríkirkjunni. Kaja Sigvalda/Aðsend Tónlistarkonurnar Salóme Katrín, RAKEL & ZAAR eru í þann mund að klára tónleikaferðalag um landið og enda á tónleikum í Fríkirkjunni á morgun, föstudaginn 25. mars. Þær sameinuðu krafta sína við gerð á plötunni While We Wait sem kom út síðastliðinn febrúar en stelpurnar kynntust við nám í tónlistarskóla FÍH árið 2018 og hafa verið óaðskiljanlegar síðan, bæði sem vinkonur og sem tónlistarkonur. Blaðamaður tók púlsinn á þessum söngkonum og fékk að heyra frá tónlistar ævintýrum þeirra.
View this post on Instagram A post shared by Salo me Katri n (@salomekatrin) Síðastliðin ár hafa stelpurnar allar stigið fram á sjónarsviðið á ólíkum tímum, hver með sína stuttskífu. ZAAR með Lost My Sense of Humour árið 2019, Salóme Katrín fylgdi svo með Water árið 2020 og RAKEL gaf út Nothing Ever Changes árið 2021. While We Wait er sjö laga splitt-skífa og titillag plötunnar sömdu þær í sameiningu, svo lagði hver þeirra fram tvö lög. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=rh9c0eBoDHA">watch on YouTube</a> Vináttan lagði grunn að samstarfinu „Það einkennir plötuna á marga vegu að við nýttum okkur einvörðungu þau hljóðfæri og tónlistarfólk sem voru í okkar nærumhverfi, bæði þegar platan var samin og tekin upp,“ segja stelpurnar. View this post on Instagram A post shared by RAKEL (@rakelisrakel) Þær segja erfitt að að tímasetja upphaf samstarfsins þar sem þær hafa verið undir áhrifum hverrar annarrar frá því þær kynntust. „Við höfum allar spilað í sólóverkefnum hverrar annarrar síðastliðin ár og sótt mikinn innblástur frá hver annarri síðan við kynntumst. Það er því kannski ekki alveg hægt að tímasetja upphaf samstarfsins fullkomlega, kannski má bara segja að samstarfið hafi byrjað þegar við urðum vinir.“ Nýr vettvangur fyrir tónlistarflutning „Hugmyndin að því að búa til splitt-skífu spratt út frá streymis-tónleikum sem við héldum haustið 2020 í Mengi.“ View this post on Instagram A post shared by ZAAR (@zaar.music) Þær segjast hafa þurft að leita leiða til að koma tónlistinni áleiðis í Covid, þar sem plön um tónleika voru að sjálfsögðu röskuð og alheimsfaraldurinn breytti öllum hugmyndum um framtíðina. „Okkur skorti einhverskonar vettvang til þess að flytja tónlistina okkar. Þá lá í augum uppi að nýta það sem var hendi næst og skipuleggja tónleika þar sem við gætum spilað tónlist hvor annarrar. Úr varð tónleika prógramm þar sem við vorum bara þrjár að spila á þau hljóðfæri sem við höfðum aðgang að þá stundina. Það er einhver fegurð í því, hún fleytti okkur hingað.“ Innblásturinn út um allt Stelpurnar segja samstarfið hafa gengið ótrúlega vel, enda gott að vinna skapandi verkefni með traustum vinum. „Það er mögnuð upplifun að fá að vinna að svona verkefni með bestu vinkonum sínum.“ Innblásturinn fyrir listsköpunina kemur svo til þeirra úr ólíkum áttum. „Við sækjum innblástur í svo ótrúlega margt. Til að mynda hver aðra, annað tónlistarfólk, vini okkar og fjölskyldu, umhverfið okkar, náttúruna og allt sem henni fylgir. Svo er það náttúrulega alltaf ástin og lífið og það allt.“ Salóme Katrín, ZAAR og RAKEL eru bestu vinkonur sem vinna vel saman.Kaja Sigvalda/Aðsend Þrír gamlir Subarus lögðu af stað í leiðangur Mars mánuður hefur verið viðburðaríkur hjá þessum tónlistarkonum þar sem þær hafa ferðast víða og haldið tónleika. „Við hófum tónleikaferðalagið mikla í dagrenningu þann þriðja mars þegar þrír gamlir Subaru bílar lögðu af stað frá Reykjavík til Akureyrar. Þann sama dag spiluðum við á Græna Hattinum þar sem var tekið ótrúlega fallega á móti okkur. Daginn eftir brunuðum við aftur til Reykjavíkur í glampandi sólskini og fórum beint upp í Efstaleiti til að spila hjá Gísla Marteini. Við stöldruðum stutt við í borginni því leiðin lá rakleiðis í heimabæ Salóme Katrínar, Ísafjörð. Þar spiluðum við í einu elsta húsi bæjarins sem hýsir nú Byggðasafnið á Ísafirði.“ View this post on Instagram A post shared by Salo me Katri n (@salomekatrin) Nú er komið að endastoppi tónleikaferðalagsins sem eru tónleikarnir í Fríkirkjunni í Reykjavík. „Á þessum tónleikum í Fríkirkjunni munum við flytja plötuna While We Wait í heild sinni ásamt eldra efni eftir okkur allar. Með okkur verður stórglæsileg hljómsveit sem er í senn magnað tónlistarfólk og ótrúlega góðir vinir okkar,“ segja stelpurnar og vilja að lokum bæta við: „Góður vinur er gulli betri.“ Miðasala fer fram á tix.is.
Tónlist Tengdar fréttir „Ástríðan fyrir tónlistinni einhvern veginn alltaf fylgt mér“ Söngkonan Rakel Sigurðardóttir er tilnefnd sem Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár. Hún er nýbyrjuð að gefa út eigið efni en hefur í gegnum tíðina komið fram með fjölda tónlistarfólks og er meðal annars á laginu Ég var að spá sem er tilnefnt sem Lag Ársins á hátíðinni. 2. mars 2022 11:31 Sameina þrjú verkefni í einni plötu Þrjár tónlistarkonur, Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR, leiða saman hesta sína á nýrri splittskífu sem kemur út þann 25. febrúar næstkomandi. Ber gripurinn titilinn While We Wait og er með tveimur lögum með hverri þeirra fyrir sig ásamt einu sem þær gerðu saman. 14. janúar 2022 15:26 „Átti engar bækistöðvar og fannst ræturnar alveg tvístraðar“ Tónskáldið, lagahöfundurinn og hljóðfæraleikarinn Sara Flindt eða ZAAR gefur frá sér tilfinningaríka og angurværa lagið Organize. 31. janúar 2022 15:20 Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Frumsýning á Vísi: „Þetta er alveg ný hlið á mér“ Sjá meira
„Ástríðan fyrir tónlistinni einhvern veginn alltaf fylgt mér“ Söngkonan Rakel Sigurðardóttir er tilnefnd sem Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár. Hún er nýbyrjuð að gefa út eigið efni en hefur í gegnum tíðina komið fram með fjölda tónlistarfólks og er meðal annars á laginu Ég var að spá sem er tilnefnt sem Lag Ársins á hátíðinni. 2. mars 2022 11:31
Sameina þrjú verkefni í einni plötu Þrjár tónlistarkonur, Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR, leiða saman hesta sína á nýrri splittskífu sem kemur út þann 25. febrúar næstkomandi. Ber gripurinn titilinn While We Wait og er með tveimur lögum með hverri þeirra fyrir sig ásamt einu sem þær gerðu saman. 14. janúar 2022 15:26
„Átti engar bækistöðvar og fannst ræturnar alveg tvístraðar“ Tónskáldið, lagahöfundurinn og hljóðfæraleikarinn Sara Flindt eða ZAAR gefur frá sér tilfinningaríka og angurværa lagið Organize. 31. janúar 2022 15:20