Fjárfestingafélag erfingja endaði í 49 milljarða gjaldþroti Eiður Þór Árnason skrifar 5. apríl 2022 16:10 Búið var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 14. mars 2012. Vísir/Vilhelm Skiptum á þrotabúi fjárfestingafélagsins Icecapital ehf. lauk 28. mars síðastliðinn en búið var tekið til gjaldþrotaskipta í mars 2012 eða fyrir rúmum tíu árum. Almennar kröfur í búið námu alls 49,6 milljörðum króna en upp í þær fengust einungis 438,7 milljónir, eða 0,88 prósent.
Eftir stendur því rúmlega 49 milljarða króna gjaldþrot félagsins. Greint er frá skiptalokunum í Lögbirtingablaðinu í dag. Icecapital ehf. hét áður Sund ehf. en í síðasta birta ársreikningi félagsins frá árinu 2009 segir að tilgangur þess sé fjárfestingar í fjármálagerningum, lánastarfsemi og rekstur fasteigna. Það átti stóran hlut í viðskiptabönkunum áður en þeir hrundu árið 2008. Ekki fyrsta milljarða gjaldþrotið Mbl.is greinir frá því að félagið hafi haldið utan um fjárfestingar Óla Kr. Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra og eiganda Olís. Hann lést árið 1992. Árið 2009 var Icecapital ehf. í jafnri eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur, eiginkonu Jóns, og barna hennar Gabríelu Kristjánsdóttur og Jóns Kristjánssonar, samkvæmt ársreikningi. Helstu kröfuhafar í þrotabú Icecapital voru Arion banki, Landsbankinn, Landsbankinn í Lúxemborg, íslenska ríkið og Glitnir. Árið 2019 lauk skiptum IceProperties ehf., dótturfélagi Icecapital. Þá fékkst ekkert upp í lýstar kröfur sem námu alls tæplega 8,6 milljörðum króna. Skipti þrotabúsins tóku tæplega níu ár.
Gjaldþrot Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira