Guðjón Valur stýrði Gummersbach upp og Elliði öskursöng YNWA Sindri Sverrisson skrifar 11. maí 2022 13:01 Elliði Snær Viðarsson tók vel undir í fagnaðarlátum Gummersbach í gærkvöld. @vflgummersbach Guðjón Valur Sigurðsson, Elliði Snær Viðarsson og Hákon Daði Styrmisson gátu í gærkvöld fagnað sæti Gummersbach í efstu deild Þýskalands á næstu leiktíð.
Guðjón Valur tók við stjórn Gummersbach fyrir tveimur árum og var aðeins einu stigi frá því að skila liðinu beint upp í efstu deild í fyrra. Nú er liðið hins vegar langefst í 2. deildinni og þegar búið að tryggja sér sæti í efstu deild. Það varð endanlega ljóst í gærkvöld þegar liðið í 2. sæti, Hamm, gerði jafntefli við Grosswallstadt. Lærisveinar Guðjóns voru ekki að spila í gær en fylgdust með því saman þegar úrslitin réðust og fögnuðu vel og innilega. View this post on Instagram A post shared by VfL Gummersbach (@vflgummersbach) Fagnaðarlætin héldu svo áfram fram á nótt og Eyjamaðurinn Elliði lét ekki sitt eftir liggja og sérstaklega þegar leikmenn sungu saman lagið You‘ll Never Walk Alone sem Íslendingar þekkja sjálfsagt best frá Anfield í Liverpool. View this post on Instagram A post shared by VfL Gummersbach (@vflgummersbach) Fagnaðarlætin munu svo halda áfram á laugardagskvöld eftir næsta heimaleik Gummersbach. Leikmenn og þjálfarar munu þá stíga á svið og eiga svo góða stund með stuðningsmönnum, undir ljúfum tónum og með góða drykki í glasi, samkvæmt heimasíðu félagsins. Þrír Íslendingar hafa leikið með Gummersbach í vetur. Elliði hefur skorað 94 mörk í 32 leikjum og annar Eyjamaður, Hákon Daði, 76 mörk í 16 leikjum en þessi öflugi hornamaður sleit krossband í hné í desember. Óðinn Þór Ríkharðsson tók svo stutt hlé frá KA í Olís-deildinni og lék þrjá leiki með Gummersbach til að leysa af og skoraði í þeim 17 mörk.
Þýski handboltinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira