Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna klukkan sjö alla morgna þar sem það er mitt hlutverk að ræsa alla og koma öllum af stað inn í daginn.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég byrja daginn á að vekja og knúsa stelpurnar mínar og fer að laga kaffi og morgunmat handa liðinu. Þegar búið er að koma öllum út finnst mér virkilega gott að byrja minn vinnudag á hálftíma göngu í hverfinu, ef tími gefst til, aðeins til að hreinsa hugann og mæta fersk upp á skrifstofu.“
Hvaða íslenski sumarsmellur kemur þér alltaf í sólskinsskap og fær þig til að syngja með?
Vor í Vaglaskógi með Kaleo kemur mér alltaf í sólskinsskap þar sem við fjölskyldan áttum svo gott ferðasumar eitt árið þar sem þessi smellur fékk að hljóma í hverri bílferð.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Þessi dagana er mikið um að vera enda þörfin til að lyfta sér upp sjaldan verið meiri.
Ég er þessa stundina að vinna að skipulagningu 60 ára afmælis BYKO og svo Sjómannadeginum í Reykjavík. Það verður nóg um að vera fyrir fjölskyldur þessa komandi helgina en það er svakalega skemmtilega dagskrá í BYKO Breiddinni á laugardaginn þar sem boðið verður upp á frábæra skemmtidagskrá á sviði ásamt fullt af góðum kræsingum og geggjuðum tilboðum.
Á sunnudaginn fögnum við svo Sjómannadeginum við Reykjavíkurhöfn, en á Grandagarði verður pakkfull dagskrá af alls kyns uppákomum til dæmis siglingar með varðskipinu Þór, fjölskylduratleikur, fiskflökunarkeppni, koddaslagur, reipitog, tvö svið stútfull af frábærum skemmtikröftum og margt fleira. Auk þess verður heiðrun Sjómanna haldin hátíðleg í Hörpu klukkan tvö á sunnudaginn.
Það er því um að gera að gera sér glaðan dag og eiga góða fjölskyldustund saman.
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Ég er með endalaust af verkefnalistum. Ég nota mikið tékklista og finns mjög gott að gera tékklista fyrir hvern dag, það sem ekki klárast þann daginn færist yfir á næsta.
En svo er þetta svo mikið í hausnum á manni og það kemur alveg fyrir að maður vaknar um miðjar nætur og byrjar að gera tékklista, því er alltaf gott að hafa blað og penna á náttborðinu.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er oftast að koma mér í háttinn uppúr klukkan ellefu en þá á maður eftir að liggja í smá stund og fara yfir daginn og rifja upp hvað sé framundan næsta dag.“