Fara til Pakistan á sunnudag til að ljúka leiðangri Johns Snorra Eiður Þór Árnason skrifar 22. júlí 2022 17:33 John Snorri heitinn og Lína Móey þegar hann kom til landsins árið 2017 eftir að hafa toppað K2 að sumarlagi. Lífsspor K2 Fjölskylda Johns Snorra Sigurjónssonar leggur af stað til Pakistan á sunnudag til að ganga frá jarðneskum leifum fjallagarpsins sem fórst á fjallinu K2 í mars á seinasta ári.
Lína Móey, ekkja Johns Snorra, segir að með þessu vilji fjölskyldan ljúka leiðangri hans en John Snorri reyndi að komast fyrstur manna upp fjallið að vetri til. Talið er að hann hafi náð á toppinn áður en hann lést. Fyrr í þessum mánuði gaf fjölskylda Johns Snorra út að hún hafi óskað eftir því að lík hans yrði fært og grafið með ferðafélögum hans Juan Pablo Mohr og Muhammad Ali Sadpara. Gangi það ekki vonist þau til þess að hið minnsta verði hægt verði að færa líkið af gönguleiðinni upp fjallið K2. Lína segir fjölskylduna þó eiga sér þá ósk heitasta að geta flutt jarðneskar leifar Johns Snorra til Íslands og grafa hann á íslenskri grundu. Hún greinir frá þessu í Instagram-sögu sinni og segir að hún muni fara til Pakistan ásamt þremur öðrum úr fjölskyldunni. Nokkur aðdragandi sé að ferðinni og undirbúningurinn hafi fyrst og fremst verið andlegs eðlis. „Þetta verður erfið ferð. Bæði erum við í rauninni með óvissu um hvernig staðan verður, komum við til með að setja John inn í fjallið eða komum við til með að fá hann alveg niður úr fjallinu og fá hann heim sem væri náttúrulega eitthvað sem við óskum okkur að gerist,“ segir Lína í myndskeiðinu. Það skipti fjölskylduna miklu máli að farið verði gætilega og enginn slasist. Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fjallaði um örlög Johns Snorra í sérstökum fréttaannál í lok seinasta árs. Hittir forseta Pakistan Fjölskyldan ætlar að dvelja í Pakistan í rúmar tvær vikur og liggur fyrir þétt dagskrá. Að sögn Línu mun hún meðal annars hitta Arif Alvi, forseta Pakistan, fólk sem aðstoðaði við leitina að John Snorra og fara í fjölmiðlaviðtöl. „Við fjölskyldan vonumst til að þessi ferð eigi eftir að gera góða hluti fyrir okkur og aðra og ég er búin að finna ótrúlegan stuðning frá öllum í kringum mig, bæði frá fólki sem ég þekki og þekki ekki. Allir eru tilbúnir í að aðstoða eins og þeir geta,“ segir Lína í færslunni á Instagram. Hún bætir við hún hafi meðal annars búið sig undir ferðina með því að skoða í fyrsta sinn þær fréttir sem birtust um John Snorra á sínum tíma. „Það var mjög erfitt að fara í gegnum þetta en að sama skapi mjög mikilvægt til að vera tilbúin í að fara út, af því að ég veit að ferðin á eftir að toga okkur aftur til baka í þann sársauka sem við upplifðum á sínum tíma,“ segir Lína að lokum.
John Snorri á K2 Pakistan Tengdar fréttir Vilja grafa John Snorra hjá Juan Pablo og Ali á K2 Fjölskylda Johns Snorra Sigurjónssonar hefur óskað eftir því að lík hans verði fært og grafið með ferðafélögum hans, Juan Pablo Mohr og Muhammad Ali Sadpara. Sé ekki hægt að gera það verði líkið fært af gönguleiðinni upp fjallið K2. 12. júlí 2022 19:02 John Snorri reyndi hið fáránlega til að takast hið ómögulega „Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“. Þessi speki spænsks rithöfundar voru einkunnarorð John Snorra Sigurjónssonar fjallgöngukappa. Orð sem áttu vel við hjá manni sem vann endurtekið afrek sem okkur hinum fannst ótrúleg. 2. desember 2021 07:00 Telur að lykkja á línu John Snorra hafi reynst örlagarík Úkraínski fjallgöngugarpurinn Valentyn Sypavin telur að John Snorri Sigurjónsson hafi lent í eins konar sjálfheldu eftir að línan sem hann hékk í á niðurleið niður K2 hafi verið föst í lykkju. Hann telur ólíklegt að John Snorri hafi haft þrek til þess að koma sér úr þessum aðstæðum. 10. ágúst 2021 11:36 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Vilja grafa John Snorra hjá Juan Pablo og Ali á K2 Fjölskylda Johns Snorra Sigurjónssonar hefur óskað eftir því að lík hans verði fært og grafið með ferðafélögum hans, Juan Pablo Mohr og Muhammad Ali Sadpara. Sé ekki hægt að gera það verði líkið fært af gönguleiðinni upp fjallið K2. 12. júlí 2022 19:02
John Snorri reyndi hið fáránlega til að takast hið ómögulega „Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“. Þessi speki spænsks rithöfundar voru einkunnarorð John Snorra Sigurjónssonar fjallgöngukappa. Orð sem áttu vel við hjá manni sem vann endurtekið afrek sem okkur hinum fannst ótrúleg. 2. desember 2021 07:00
Telur að lykkja á línu John Snorra hafi reynst örlagarík Úkraínski fjallgöngugarpurinn Valentyn Sypavin telur að John Snorri Sigurjónsson hafi lent í eins konar sjálfheldu eftir að línan sem hann hékk í á niðurleið niður K2 hafi verið föst í lykkju. Hann telur ólíklegt að John Snorri hafi haft þrek til þess að koma sér úr þessum aðstæðum. 10. ágúst 2021 11:36