Fótbolti

Fyrsta mark Daníels Leós skilaði liði hans sigri

Hjörvar Ólafsson skrifar
Daníel Leó Grétarsson gerði gæfumuninn í leiknum í dag. 
Daníel Leó Grétarsson gerði gæfumuninn í leiknum í dag.  Vísir/Getty

Daní­el Leó Grét­ars­son, landsliðsmaður í fótbolta, tryggði Slask Wroclaw 2-1 sigur þegar liðið mætti Pogon Szczec­in í ann­arri um­ferð pólsku efstu deild­ar­inn­ar í dag.

Sigurmark Daníels Leós var það fyrsta sem hann skorar fyrir Slask Wroclaw en Grindvíkingurinn kom til pólska félagsins frá Blackpool í byrjun þessa árs. 

Slask Wroclaw er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína í deildinni. 

Daníel Leó spilaði einnig allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Slask Wroclaw þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Zagłębia Lubin í fyrstu umferð deildarinnar. 

Þetta tap er olía á eld reiðinnar hjá stuðningsmönnum Pogon Szczec­in sem létu leikmenn liðsins heyra það eftir tap gegn KR í seinni leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. 

Þeir stuðningsmenn Pogon Szczec­in sem lögðu leið sína í Vesturbæinn í síðustu viku voru ekki parsáttur við 1-0 ósigur liðsns gegn KR þrátt fyrir að pólska liðið hafi farið sannfærandi áfram í næstu umferð undankeppninnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×