Sól og sumar fyrir norðan en rok og rigning fyrir sunnan Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. ágúst 2022 11:52 Veðrinu verður misskipt á morgun, eins og glögglega má sjá á þessari mynd. Veðurstofan Veðrið mun leika við íbúa á Norður- og Austurlandi á morgun. Íbúar á Suður- og Vesturlandi þurfa hins vegar á sama tíma að þola grenjandi rigningu og stífa suðaustanátt.
Ágústmánuður hefur verið í kaldara lagi á mestöllu landinu. Á morgun verður þó breyting á fyrir íbúa á Norðurlandi og Austurlandi Spáð er allt að 22 stiga á Akureyri, svipaða sögu er að segja um aðra hluta Norðurlands. „Á morgun á Norðurlandi er líklegt að hitinn fari allvíða yfir tuttugu gráður,“ segir Birkir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Búast má reyndar við nokkuð stífri sunnanátt á svæðinu. Hún mun þó leika lykilhlutverk í að ýta hitanum upp fyrir tuttugu stig á morgun. Nokkuð hlýtt loft liggur yfir landinu.Veðurstofan „Sunnanáttin heldur allri hafgolu í burtu,“ segir Birkir Örn. Á Austurlandi er svipaða sögu að segja þar sem reikna má með allt að tuttugu stiga hita víðast hvar í landshlutanum. Veðrinu er þó misskipt á morgun. Spáð er rigningu og roki sunnan- og vestantil. Íbúar á Suður- og Vesturlandi þurfa því væntanlega að þola óbærilegar sólarmyndir frá Norður- og Austurlandi á samfélagsmiðlum á morgun. „Á morgun er þetta í rauninni bara stíf suðaustanátt og grenjandi rigning sunnan- og vestantil á landinu á meðan það verður þetta bjartviðri fyrir norðan,“ segir Birkir Örn.
Veður Akureyri Múlaþing Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira