„Ánægður með okkur í dag“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. september 2022 20:55 Einar Jónsson stýrði Fram til sigurs í vígsluleiknum á nýjum heimavelli félagsins. vísir/hulda margrét Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ánægður eftir fyrsta keppnisleik félagsins á nýja heimavellinum í Úlfarsárdal. Frammarar unnu þá Selfyssinga örugglega, 33-26. „
Þetta voru tvö stig, frammistaðan lengst af hrikalega góð og ég var ánægður með okkur í dag. Við fylgdum leikáætluninni nánast allan leikinn og vorum flottir,“ sagði Einar eftir leik. Fram keyrði stíft í bakið á Selfossi sem skilaði mörgum mörkum úr hraðaupphlaupum. Þessi leikstíll er kominn til að vera hjá Fram segir Einar. „Við erum búnir að djöflast í þessu á undirbúningstímabilinu með misjöfnum árangri. Þetta gekk mjög vel í fyrri hálfleik en svo breyttist takturinn í leiknum í seinni hálfleik. Við vorum svolítið oft manni færri. Ég hefði viljað skora fleiri mörk. Við klikkuðum á upplögðum færum í upphafi seinni hálfleiks. Við fengum dauðafæri á eftir dauðafæri og hefðum getað slátrað leiknum. En við vorum með leikinn í okkar höndum og sigurinn var öruggur,“ sagði Einar. „En við eigum helling inni þrátt fyrir að mér hafi fundist við yfirspila Selfoss á köflum í dag.“ Fram er með breiðan leikmannahóp og Einar dreifði álaginu vel í leiknum í kvöld. „Við erum með fullt af mönnum og svo eru líka menn utan hóps sem leggja örugglega eitthvað í púkkið í vetur. Við erum í þokkalegu standi en eigum eftir að komast í betra stand. Við erum með fullt af mönnum sem geta hlaupið og spilað vörn og sókn,“ sagði Einar að endingu.
Olís-deild karla Fram UMF Selfoss Mest lesið Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Í beinni: Valur - Porrino | Evróputitill í boði Handbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Í beinni: Crystal Palace - Man. City | Bikarúrslitaleikurinn Enski boltinn „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Valur - Porrino | Evróputitill í boði „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Sjá meira