Janus fór á kostum í naumum sigri gegn meisturunum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. október 2022 21:33 Janus Daði Smárason átti stórleik er Kolstad vann nauman sigur gegn norsku meisturunum í Elverum. Kolstad Janus Daði Smárason var allt í öllu í sóknarleik Kolstad er liðið vann nauman tveggja marka sigur gegn Noregsmeisturum Elverum í Íslendingaslag norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, 26-24.
Kolstad og Elverum áttust við fyrir framan troðfulla Trondheim Spektrum höll í dag þar sem yfir níu þúsund manns mættu til að sjá þessi tvö bestu lið landsins eigast við. Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, en gestirnir í Elverum náðu þó yfirhöndinni um miðjan fyrri hálfleikinn og náðu mest fjögurra marka forskoti fyrir hlé. Það voru þó heimamenn í Kolstad sem skoruðu seinasta mark hálfleiksins og staðan var því 10-13, Elverum í vil, þegar gengið var til búningsherbergja. Gestirnir höfðu áfram yfirhöndina framan af í síðari hálfleik og leiddu með tveimur mörkum þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Heimamenn skoruðu þó næstu tvö mörk leiksins og staðan var því jöfn þegar um átta mínútur voru eftir. Gestirnir leiddu svo með einu marki, 23-24, þegar um þrjár mínútur voru eftir, en þá skoraði Janus tvö mörk í röð og kom Kolstad yfir í fyrsta skipti síðan í stöðunni 6-5. Gestirnir í Elverum fengu tækifæri til að jafna leikinn þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka, en Sigvaldi Guðjónsson var réttur maður á réttum stað í vörninni og stal boltanum og heimamenn tryggðu sér tveggja marka sigur um leið og lokaflautið gall, lokatölur 26-24. Janus Daði var markahæsti maður Kolstad með sjö mörk í kvöld, en Sigvaldi skoraði eitt mark fyrir liðið. Orri Freyr Þorkelsson komst ekki á blað fyrir Elverum. Kolstad trónir enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex umferðir, en Elverum situr í fjórða sæti með sex stig.
Norski handboltinn Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira