Gáfu bjór en fengu slæma meðhöndlun í staðinn Sindri Sverrisson skrifar 28. október 2022 08:30 Hákon Arnar Haraldsson með boltann í leiknum gegn Sevilla á þriðjudaginn. Getty/Fran Santiago Danska knattspyrnufélagið FC Kaupmannahöfn hefur sent opinbera kvörtun til UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, vegna þess hvernig farið var með stuðningsmenn félagsins í Sevilla á þriðjudaginn, á leik liðanna í Meistaradeild Evrópu.
Þrír Íslendingar komu við sögu í leik liðanna á Spáni í vikunni, og varð Orri Steinn Óskarsson yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeildinni. Sevilla vann þó leikinn 3-0. Þegar liðin mættust í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði gerðu þau markalaust jafntefli. Á þeim leik fengu stuðningsmenn Sevilla, sem ferðast höfðu til Danmerkur, gefins bjór frá FCK, við mikla kátínu. Gestrisnin virðist ekki hafa verið alveg sú sama hjá spænska félaginu, miðað við tilkynningu FCK. Þar segir að stuðningsmenn FCK hafi alls ekki fengið þá meðhöndlun sem þeir hefðu átt að fá hjá spænskum löggæslumönnum og öryggisvörðum Sevilla. Til að mynda hafi verið leitað þannig á stuðningsmönnum við komuna á leikvanginn að það gæti talist bæði ólöglegt og niðurlægjandi. Aðrir hafi upplifað harkalega meðferð og ósanngjarnar grunsemdir um að ætla sér eitthvað misjafnt. FCK hefur síðustu daga safnað upplýsingum um það sem gekk á og nú sent erindi til UEFA um það með hve grófum hætti hafi verið tekið á stuðningsmönnum félagsins án nokkurrar sýnilegrar ástæðu.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira