Raunveruleikastjarnan Sunneva Einars og kærastinn hennar Benedikt Bjarnason tóku Pamelu Anderson og Tommy Lee alla leið um helgina.
Veitingastjórinn Eva Einarsdóttir og Jakob Steinn voru stjarnfræðilega flott á hrekkjavökunni.
Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga og Geir Ulrich voru Mr. and Mrs. Smith.
Áhrifavaldurinn Donna Cruz hélt sitt árlega Donnuween.
Raunveruleikastjarnan Birgitta Líf og kærastinn hennar Enok Jónsson voru ótrúleg í búningunum sínum ásamt Bossa og Bellu.
Athafnamaðurinn Beggi Ólafs var Batman, líkt og hann var búinn að tilkynna Vísi.
Dansarinn og fasteignasalinn Tara Sif var lögga og handtók unnusta sinn Elfar ásamt syni þeirra.
Skemmtikrafturinn Eva Ruza og systir hennar Tinna Miljević deildu ferlinu á bak við búninginn.
Það var allt þess virði á endanum.
Grínistarnir Steindi og Villi Neto eru með uppboð í gangi. Þar eru þeir að bjóða upp glæsilegt málverk sem þeir sköpuðu í áskorun í Stóra sviðinu á Stöð 2. Sá sem kaupir verkið fær að ákveða til hvaða góðgerðafélags ágóðinn rennur.
Rapparinn Jóhann Kristófer Stefánsson og unnusta hans Alma Gytha Huntingdon-Williams eignuðust sitt annað barn þann 8. september, sem er stúlka. Fyrir eiga þau tveggja ára son.
Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson nutu sólsetursins í San Diego.
Áhrifavaldurinn Katrín Edda bíður eftir barni með eiginmanni sínum Markusi Bande.
Leikkonan Þórdís Björk deildi mynd frá fallega heimilinu sínu.
Leikkonan Hera Hilmarsdóttir setti inn myndir frá tökustað SEE þar sem hún leikur meðal annars á móti stórleikaranum Jason Momoa.
Söngvarinn Júlí Heiðar kom sá og sigraði á Grease tónleikum helgarinnar.
Áhrifavaldurinn og söngkonan Camilla Rut var glæsileg sem ein af pink ladies þar sem hún söng bakraddir í Grease sýningunni.
Söngkonan Stefanía Svavarsdóttir skein á sviðinu sem Rizzo í Grease.
Áhrifavaldurinn Guðrún Sørtveit hugsar til þess að sonur hennar hafi verið í bumbunni fyrr í mánuðinum áður en hann mætti með hraði.
Förðunarfræðingurinn Erna Hrund fagnaði afmælinu sínu í brunch með vel völdum vinkonum eftir góða afmælisviku.
Söngvarinn Jón Jónsson fagnaðir 37 ára afmælinu sínu með fjölskyldunni.
Athafnakonan Tanja Ýr fékk rigningardag í Miami.
Söngvarinn Bubbi Morthens segir það himneskt að syngja í brúðkaupum.
Crossfit stjarnan Annie Mist keppti sem einstaklingur á Rogue Invitational stórmótinu um helgina. Frammistaðan skilaði henni á verðlaunapallinn.
Dóttir athafnakonunnar Elísabetar Gunnars fékk nafnið Anna Magdalena.
Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson er enn í Bangkok þar sem hann hefur eytt síðustu vikum.
Bakarinn Elenora Rós er að gefa út sína aðra uppskriftarbók, aðeins tuttugu og eins árs gömul. „Upp og niður ferli en í endanum stend ég meyrari en nokkru sinni fyrr,“ segir hún í fyrri færslum.
Áhrifavaldurinn Erna Kristín krúttaði yfir sig með syni sína Adam Bassa og Emil Bassa i myndatöku.
Gummi Kíró veit hvað hann syngur þegar kemur að tískunni.
Söngkonan GDRN er að kynnast móðurhlutverkinu eftir að hún tók á móti sínu fyrsta barni.
Hljómsveitin Kaleo fagnar góðu gengi en þeir hafa nú spilað í tuttugu og tveimur löndum.
Leikkonan Rakel Björnsdóttir er komin með í lítið ævintýr.