Eflir unga lagahöfunda
Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónhyl en tónlistarmaðurinn Kristján Sturla starfar þar og hefur verið strákunum innan handar við verkefnið.
„Tónhylur er að fara af stað með útgáfu á ungu tónlistarfólki úr akademíu félagsins en félagið hefur það meðal annars að markmiði að efla unga lagahöfunda.
Útgáfan er liður í því að hjálpa ungu tónlistarfólki að koma sér á framfæri með því að gefa út undir merkjum Tónhyls þegar þau eru að byrja þá sem hluti af stærri heild tónlistarfólks sem styður við hvort annað,“ segir Kristján Sturla.

Fjölbreyttir styrkleikar
Strákarnir tilheyra því fyrsta hópi sem er hluti af þessu verkefni en þeir hafa verið hjá Tónhyl í rúm tvö ár.
Þeir eru sem áður segir ellefu talsins og heita Kristján Saenz, Theodór Gísli Sigurgeirsson, Egill Airi Daníelsson, Tryggvi Þór Torfason, Ísak Örn Friðriksson, Helgi Trausti Stefánsson, Maron Birnir Reynisson, Lindi Banushi, Stefán Logi Hermannsson, Ívar Páll Arnarsson og Andri Þór Hrafnsson.
Allir komu að gerð plötunnar að einhverju leyti, sumir semja á meðan að aðrir rappa eða syngja.
Innblástur frá hver öðrum
Blaðamaður tók púlsinn á strákunum og fékk að heyra nánar frá verkefninu.
„Innblásturinn kemur úr mörgum áttum,“ segja strákarnir og nefna bæði innlend og erlend dæmi á borð við The Weeknd, Aron Can, Birni, Banger Boy, Travis Scott, Daniil og fleiri.
„Svo erum við mikið að kasta á milli hugmyndum og fá innblástur frá hver öðrum. Auk þess er mikið af fólki í Tónhyl sem gefur okkur innblástur.“

Þeir segja margt skemmtilegt við tónlistina og stefna langt.
„Það er svo gaman að byrja á einhverri nýrri pælingu og sjá hana verða til.
Að gera eitthvað úr engu, vinna í stúdíóinu og vinna með skemmtilegu fólki. Svo er skemmtilegt að hlusta á lög sem þú bjóst til sjálfur.
Framtíðin er spennandi hjá þessum upprennandi tónlistarmönnum.
„Við stefnum á að halda áfram að verða betri og auka þekkingu okkar í að búa til tónlist. Við ætlum að gera meiri tónlist saman. Okkur langar að spila meira live, taka fleiri gigg og verða góðir í því. Að fá að spila á alls konar stöðum og leyfa fleira fólki að heyra tónlistina okkar.“