Öruggur Meistaradeildarsigur Bjarka og félaga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. desember 2022 19:21 Bjarki Már Elísson og félagar hans í Veszprem eru í góðum málum í A-riðli Meistaradeildarinnar. Veszprem Bjarki Már Elísson og félagar hans í Telekom Veszprém unnu öruggan tíu marka sigur er liðið tók á móti Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, 32-22.
Bjarki og félagar eru í harðri baráttu við PSG og Íslendingalið Magdeburg um efstu þrjú sæti A-riðils Meistaradeildarinnar og sigurinn í kvöld styrkti stöðu liðsins í öðru sætinu. Efstu tvö sæti riðilsins gefa beint sæti í átta liða úrslit keppninnar, en liðin sem hafna í 3.-6. sæti fara í 16-liða úrslit. Heimamenn í Veszprém leiddu með átta mörkum í hálfleik og sigurinn var því í raun aldrei í hættu. Liðið vann að lokum afar öruggan tíu marka sigur, 32-22, en Bjarki Már skoraði eitt mark fyrir liðið. Veszprém situr líkt og fyrr segir í öðru sæti A-riðils með 15 stig eftir níu leiki, einu stigi minna en topplið PSG og þremur stigum meira en Magdeburg í þriðja sætinu. Þá var landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson ekki í leikmannahóp Nantes vegna meiðsla er liðið heimsótti Kiel. Nantes mátti þola fjögurra marka tap, 37-33, og situr í þriðja sæti B-riðils með 12 stig, fjórum stigum meira en Kiel sem situr í fjórða sæti.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Tapaði titlinum í lokabeygjunni Sport Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira