Innlent

Segir kúrekastæla Bjarna valda verulegu tjóni

Jakob Bjarnar skrifar
Jóhann Páll sagði að samkvæmt sínum heimildum þá standi engar viðræður yfir milli fjármálaráðuneytisins og lífeyrissjóðanna um skuldir ÍL-sjóðs.
Jóhann Páll sagði að samkvæmt sínum heimildum þá standi engar viðræður yfir milli fjármálaráðuneytisins og lífeyrissjóðanna um skuldir ÍL-sjóðs. vísir/vilhelm

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hélt því fram á þinginu í dag að engar viðræður stæðu yfir milli fjármálaráðuneytisins og lífeyrissjóðanna um skuldir gamla Íbúðarlánasjóðsins – ÍL-sjóðs. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra hafi farið með fleipur í þeim efnum.

„Samkvæmt mínum upplýsingum er þetta rangt. Það standa engar viðræður yfir enda telja stjórnir lífeyrissjóðanna sér ekki heimilt að semja um skerðingu á eignum sjóðfélaga, þó það nú væri,“ sagði Jóhann Páll.

Þingmaðurinn benti á að nú liggi fyrir lögfræðiálit frá Róberti Spanó, fyrrverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu, þar sem fram komi að tillaga Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um að setja ÍL-sjóð í þrot með lagasetningu feli í sér eignarnám, næði hún fram að ganga. 

Slík lagasetning myndi baka ríkinu bótaskyldu gagnvart skuldabréfaeigendunum, meðal annars lífeyrissjóðum og almannaheillasamtökum. Kröfur samkvæmt skuldabréfaflokkunum og skilmálum þeirra teljist að fullu eign í skilningi stjórnarskrár Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu og viðauka við hann, þar með talið höfuðstóllinn, verðbætur, áfallnir vextir og fastir samningsbundnir vextir út lánstímann.

„Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að ég hef enga trú á því að hæstv. fjármálaráðherra muni standa við stóru orðin og leggja fram frumvarpið sem hann boðaði. 

Jóhann Páll segir Bjarna alveg úti í skurði með sinn málflutning varðandi ÍL-sjóð og honum væri sæmst að viðurkenna það sem blastir við í þeim efnum.vísir/vilhelm

Hann er algjörlega kominn út í skurð í þessu máli og í staðinn fyrir að þráast við ætti hann kannski bara að viðurkenna það og gangast við því að þessi sérkennilegi blaðamannafundur sem hann hélt hérna í haust, þar sem hann hótaði lagasetningu og þóttist geta stillt lífeyrissjóðum upp við vegg og hlaupist undan ríkistryggðum skuldbindingum, var frumhlaup,“ segir Jóhann Páll. Og það sem verra er, að mati þingmannsins, þá hafi Bjarni með þessu valdið verulegu tjóni.

„Þetta voru kúrekastælar, alvarlegt frumhlaup sem hafði strax áhrif á virði bréfanna. Á meðan hæstvirtur ráðherra viðheldur þessari óvissu í staðinn fyrir að gangast við því að hann hafi rangt fyrir sér þá verður virði þessara eignaflokka í óvissu, þá er virði bréfanna haldið niðri að ósekju og þannig er hæstvirtur ráðherra bæði að skaða trúverðugleika ríkissjóðs sem útgefanda skuldabréfa og í raun að skaða hagsmuni lífeyrissjóðanna og sjóðfélaga þeirra.“


Tengdar fréttir

Segja ráðherra bera ábyrgð á ÍL-sjóði

Forsvarsmenn lífeyrissjóða landsins segja lagalega stöðu sjóðanna afar sterka vegna fyrirhugaðra slita ÍL-sjóðs. Ábyrgð ríkisins á skuldum ÍL-sjóðs sé skýr. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út eftir að lögfræðiálit frá LOGOS var kynnt forsvarsmönnum sjóðanna í dag.

Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði

Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×