Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
1 2 3 4 5 6 … 148 ›
Ríkisstjórnin bjó sjálf til flóttamannavandamál Þingflokksformaður Pírata telur að boða ætti til þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrst um hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Ríkisstjórnin hafi með ósanngirni búið til flóttamannavandamál úr hælisleitendum frá Venesúela sem hún hafi fyrst boðið til landsins og svo ákveðið að reka á brott með ærnum tilkostnaði. Píratar stefni að því að komast í ríkisstjórn að loknum kosningum. Innlent 9.11.2024 08:02
Píratar vilja stofnun til að rannsaka spillingu á Íslandi Þingflokksformaður Pírata segir hreyfinguna stefna á að komast í stjórnarsamstarf án Sjálfstæðisflokksins þótt á brattan hafi verið að sækja í könnunum. Í Samtalinu með Heimi Má segir hún enn nauðsynlegra en áður að taka upp viðræður um aðild að Evrópusambandinu eftir að Donald Trump var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna. Innlent 7.11.2024 19:50
Píratar stefna á stjórnarsamstarf án Sjálfstæðisflokksins Þórhildur Sunna Ævardóttir þingflokksformaður Pírata er sannfærð um að hreyfingunni takist að koma fulltrúum á þing þótt á brattan hafi verið að sækja í könnunum að undanförnu. Í Samtalinu með Heimi Má segir hún Pírata stefna að því að komast í ríkisstjórn en muni þó ekki mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Innlent 7.11.2024 16:28
Grasrótin að styrkjast eftir samstarf sem mögulega var of dýrkeypt Ákvörðun Vinstri grænna um áframhaldandi samstarf með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2021 var afdrifarík og orkar tvímælis. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, í kosningapallborðinu í dag. Innlent 4.11.2024 20:00
Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. Innlent 4.11.2024 11:38
Ekkert sem gefi til kynna að Framsókn standi fyrir mannúð Formaður hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk segir Framsóknarflokkinn hafa innleitt mannfjandsamlegustu stefnu í málefnum flóttafólks frá seinni heimsstyrjöld. Ekkert við framferði flokksins síðustu ár gefi til kynna að hann standi fyrir mannúð þrátt fyrir orð formannsins um annað. Innlent 2.11.2024 10:57
Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum. Innlent 31.10.2024 19:52
Þakklát fyrir að missa ekki sjónina síðar á ævinni Inga Sæland formaður og stofnandi Flokks fólksins gerir lítið úr væringum innan flokksins nú þegar hún leiðir hann í fjórða sinn í kosningum til Alþingis. Tveir áberandi þingmenn í forystu flokksins, Tómas A. Tómasson í Reykjavíkurkjördæmi norður og Jakob Frímann Magnússon í Norðausturkjördæmi, fengu ekki brautargengi til að leiða flokkinn í kjördæmum sínum. Innlent 26.10.2024 08:02
Gagnlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgengst völd Formaður VG segir vendingar í matvælaráðuneytinu og mögulegt leyfi til hvalveiða draga fram hvernig Sjálfstæðisflokkurinn umgangist völd þegar viðnámið sé lítið. Það hljómi sem brandari að líkja útgáfu hvalveiðileyfis við útgáfu ökuskírteinis, líkt og Jón Gunnarsson hafi gert. Innlent 25.10.2024 11:50
Forystukonan sem sögð er hafa grátið sig á þing Inga Sæland formaður Flokks fólksins mætir í Samtalið með Heimi Má í opinni dagskrá á Stöð 2 strax að loknum fréttum og Íslandi í dag í kvöld. Hún segir eðlilega breytingar eiga sér stað á framboðslistum flokksins, þótt einn þingmanna hans hafi sagt sig úr flokknum vegna þeirra. Innlent 24.10.2024 16:00
Fimm þingmenn af átta horfnir á braut Fimm þingmenn Vinstri grænna af þeim átta sem fengu sæti á Alþingi eftir síðustu þingkosningar verða ekki á lista flokksins fyrir næstu kosningar. Meirihluti þeirra er því horfinn á braut. Innlent 21.10.2024 11:22
Grípur Bjarni tækifærið? Ef menn, kjörnir fulltrúar, móðgast, mega þeir þá bara henda öllu frá sér? Skoðun 21.10.2024 06:01
Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er keppniskona með mikla reynslu af stjórnmálum og er kominn í hlaupaskóna fyrir næstu alþingiskosningar. Hún segir engann „ráðskonurass undir fólki í Viðreisn," sem taki almannahagsmuni fram yfir sérhagsmuni. Þegar Benedikt Jóhannesson, aðalhvatamaður að stofnun Viðreisnar og fyrsti formaður flokksins, sagði af sér formennskunni aðeins sautján dögum fyrir kosningarnar 2017, stökk Þorgerður Katrín upp í brú á þessu nýsjósetta skipi í ólgusjó íslenskra stjórnmála og kom því í höfn. Innlent 5.10.2024 08:00
Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Svandís Svavarsdóttir er staðráðin í að Vinstrihreyfingin grænt framboð nái fulltrúum á þing í næstu alþingiskosningum þótt kannanir að undanförnu sýni að þar verði á brattan að sækja. Í Samtalinu á Vísi á fimmtudag fór hún yfir erindi hreyfingarinnar, stjórnarsamstarfið með Sjálfstæðisflokki og Framsókn í sjö ár og hvaða mál það eru sem hún telur mikilvægt að ná í gegn á Alþingi fyrir kosningar. Innlent 28.9.2024 08:01
Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra mætir í Samtalið hjá Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan tvö í dag. Hún býður sig fram til embættis formanns Vinstri grænna fyrir landsfund flokksins í næstu viku þar sem liggur fyrir tillaga um að slíta stjórnarsamstarfinu. Innlent 26.9.2024 10:12
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. Innlent 23.9.2024 15:05
Maður margra storma íhugar stöðu sína Bjarni Benediktsson hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því að hann íhugi nú stöðu sína eftir fimmtán ár í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Hann geri sér grein fyrir að dagur ákvörðunar renni upp innan hálfs árs, eða fyrir landsfund flokksins sem fram fer um mánaðamótin febrúar-mars á næsta ári. Ef til vill væri kominn tími til að hleypa nýju blóði inn í forystu flokksins. Innlent 21.9.2024 08:00
„Við vorum eiginlega bara í þrætum við formann nefndarinnar“ Formenn Samtaka leigjenda og húseigenda vísa ummælum fjármálaráðherra um að fullnægjandi samráð hafi verið haft við alla hagaðila á leigumarkaði, við gerð frumvarps um húsaleigulög, alfarið á bug. Formaður Samtaka leigjenda segist hafa fengið boð á einn hálftímalangan fund sem fór allur í þrætur við formann nefndarinnar. Innlent 4.9.2024 14:36
Segir Þórarin Inga hafa niðurlægt þingræðið Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur hefur sent inn erindi til forsætisnefndar/siðanefndar Alþingis þar sem hann kærir Þórarin Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins, formann atvinnuvegnefndar vegna afskipta hans af búvörulögum. Þórarinn Ingi megi teljast bullandi vanhæfur til að hafa afskipti af málinu vegna hagsmunatengsla. Innlent 4.9.2024 10:14
Niðurstöðu um smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá vænst á næstu dögum Niðurstöðu um smíði nýrrar Ölfusárbrúar er vænst á næstu dögum, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra. Standist það gætu framkvæmdir hafist í haust og ný brú verið tilbúin eftir rúm þrjú ár. Innlent 27.8.2024 20:40
Mál mannsins á þingpöllunum komið til saksóknara Máli íraksks flóttamanns sem var með háreysti á þingpöllum Algingis og steig yfir handrið þeirra í mars á síðasta ári hefur verið vísað til héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 07:18
Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Skoðun 29.6.2024 15:00
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. Innlent 28.6.2024 14:36
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. Innlent 26.6.2024 23:00
Forsætisráðherra vongóður um samkomulag um stjórnarskrárbreytingar Forsætisráðherra tekur undir með forseta Íslands með að skerpa megi á ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar varðandi embætti forseta. Hann geri sér vonir um að samkomulag náist milli flokka á þingi stjórnarskrárbreytinigar. Innlent 26.6.2024 15:00
Tímamót í örorku- og endurhæfingarmálum - takk VG, takk ríkisstjórn Mjög hefur ágerst hin síðari ár að ræða um störf kjörinna fulltrúa, á Alþingi og í sveitarstjórnum eins og það sé sjálfgefið að þeir sem þar starfa eigi fátt skilið nema skít og skömm fyrir sín störf. Skoðun 24.6.2024 18:01
Andrúmsloftið í ríkisstjórninni hafi lagast eftir að Katrín hætti Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst. Innlent 23.6.2024 16:00
Fara í saumana á sendiherraskipunum Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur óskað eftir svörum frá utanríkisráðuneyti um verklag þáverandi utanríkisráðherra Bjarna Benediktssonar við skipun sendiherra í Róm og Washington D.C. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir nefndarmaður segir að taka verði til skoðunar hvort skipanirnar standist lög. Innlent 12.6.2024 12:54
Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði segir miklu líklegra að Vinstri græn komist yfir fimm prósenta þröskuldinn í næstu kosningum en að þau geri það ekki. Í nýjustu könnunum mældist flokkurinn með sögulega lágt fylgi. Tilkynnt var fyrir helgi að flýta ætti landsfundi flokksins. Ólafur fór yfir stöðuna í stjórnmálum á Íslandi í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 11.6.2024 23:39
Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd Gísli Rafn Ólafsson Pírati var ómyrkur í máli um þann hrylling sem hann og Píratar telja sjókvíaeldi vera. Hann sagði magnafslátt, eins og til sendur á leiða í lög með nýjum lagasetningum um lagareldi, skelfilega hugmynd. Innlent 10.6.2024 16:26