Innlent

Áramótin gætu „horfið í dimmt él“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá ófærðinni sem skapaðist í óveðrinu fyrr í mánuðinum.
Frá ófærðinni sem skapaðist í óveðrinu fyrr í mánuðinum. Vísir/vilhelm

Áramótin á höfuðborgarsvæðinu gætu horfið í dimmt él, að sögn veðurfræðings, en gular hríðarviðvaranir taka gildi á suður- og vesturhluta landsins á morgun - og Vegagerðin varar við vegalokunum. Þá ríkir enn óvissa um hvort gamlársbrennur, þær fyrstu frá upphafi faraldurs, verði tendraðar á höfuðborgarsvæðinu.

Varað var við því í gær að færð gæti spillst verulega á suðvesturhorninu og víðar að morgni gamlársdags. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir þó að spáin líti heldur skár út fyrir höfuðborgarsvæðið en hún gerði í gær. Það versta ætti að vera yfirstaðið um klukkan átta í fyrramálið - í bili.

„Það er svona umferðin eftir Reykjanesbrautinni og í tengslum við flugið sem gæti orðið vandamál með og eins yfir Hellisheiði og Þrengsli, þar sem hvessir og snjóar. Það kemur til með að snjóa mikið á Suðurstrandarvegi, Grindavík og austur við Eyrarbakka og áfram austar, eins og verið hefur.“

Raunar sé ágætisveður í kortunum yfir daginn á morgun.

„Horfurnar eru núna verri fyrir síðari hluta gamlárskvölds og nýársnótt, í kjölsogi lægðarinnar kemur vestan- og norðvestanstrengur, með vindi allt að stormi og þá verður nú heldur betur skafrenningur. Og þá fylgja líka með él.“

Þannig að - áramótin sjálf eru undir.

„Þau gætu horfið í dimmt él,“ segir Einar.

Óvissa með brennurnar

Þá eru fyrirhugaðar áramótabrennur annað kvöld, í fyrsta sinn frá því að kórónuveirufaraldurinn brast á. En brennur verða ekki tendraðar ef vindhraði fer yfir 10 m/s. Ákvörðun verður tekin á fundi lögreglu, slökkviliðs, veðurfræðinga og fleiri í fyrramálið, að morgni gamlársdags. Einar bendir á í þessu samhengi að versta veðrið skelli ekki á fyrr en seint annað kvöldið.

Og áfram af veðri en 25,1 stigs frost mældist í Víðidal klukkan ellefu í morgun. Ekki hefur mælst meira frost í Reykjavík síðan 1971, þegar 25,7 stiga frost mældist ofan við Elliðavatn. Kuldapollar eru algengir í Víðidal, sem oft sker sig úr í hitamælingum á höfuðborgarsvæðinu. Rúmlega ellefu stiga frost mældist annars í Reykjavík klukkan ellefu í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×