Innlent

Lit­a­veisl­a á morg­un­himn­in­um yfir Akur­eyr­i

Tryggvi Páll Tryggvason og Samúel Karl Ólason skrifa
Glitskýin sýndu sitt allra besta í morgun.
Glitskýin sýndu sitt allra besta í morgun. Vísir/Tryggvi

Akureyringar og nærsveitungar hafa heldur betur fengið sýningu í morgun. Stærðarinnar glitský hafa skreytt morgunhimininn.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi hefur mikil litadýrð einkennt morgunhimininn í Eyjafirði.

Á vef Veðurstofunnar segir að glitský myndist gjarnan í 15 til 30 kílómetra hæð þegar óvenjukalt er í heiðhvolfinu. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu, eins og í morgun.

Klippa: Glitský yfir Akureyri

„Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (s.n. ,,perlu-móður''-lag í perluskeljum) og eru þau í ýmsum tungumálum því nefnd perlumóðurský,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Eins og Vísir sagði frá í vikunni hefur himininn verið afar litskrúðugur upp á síðkastið. Er það rakið til vatnsgufu í heiðhvolfinu sem á ættir að rekja sínar til eldgossins öfluga í Tonga á síðasta ári.

Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, veltir einmitt upp þeirri spurningu í morgun á Twitter hvort að þessi viðbótarvatnsgufa frá Tonga muni gera það að verkum að glitskýin láti sjá sig oftar á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×