Guðmundur Hólmar á leið í Hauka Sindri Sverrisson skrifar 15. febrúar 2023 10:45 Guðmundur Hólmar Helgason hefur verið sannkallaður lykilmaður í liði Selfoss frá því að hann sneri heim úr atvinnumennsku. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Handboltamaðurinn öflugi Guðmundur Hólmar Helgason mun að öllum líkindum spila með Haukum frá og með næstu leiktíð.
Þetta herma heimildir Vísis og munu samningaviðræður þess efnis vera langt komnar eða því sem næst í höfn. Guðmundur Hólmar hefur verið leikmaður Selfoss frá því að hann sneri heim úr atvinnumennsku sumarið 2020. Hann skrifaði á þeim tíma undir samning til þriggja ára við Selfoss, sem var þáverandi Íslandsmeistari. Akureyringurinn náði ekki að klára fyrsta tímabilið með Selfossi þar sem að hann sleit hásin í lok febrúar 2021. Á síðasta tímabili skoraði Guðmundur svo 55 mörk í 17 deildarleikjum og átti síðan stóran þátt í að koma Selfossi í undanúrslit Olís-deildarinnar með því að slá út FH. Í vetur er Guðmundur Hólmar, sem er lykilmaður í vörn og sókn hjá Selfossi, svo næstmarkahæstur hjá liðinu með 66 mörk í 14 leikjum, og með næsthæstu heildareinkunn liðsins hjá HB Statz eða 7. Hann bætir væntanlega við mörkum í Vestmannaeyjum í kvöld þegar Selfyssingar mæta ÍBV. Hjá Haukum spilar góður vinur og fyrrverandi liðsfélagi Guðmundar hjá Val og Akureyri, Geir Guðmundsson. Guðmundur, sem er þrítugur og hefur leikið 25 A-landsleiki, hefur einnig leikið með Cesson Rennes í Frakklandi og West Wien í Austurríki.
Olís-deild karla Haukar UMF Selfoss Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira