Viktor í sigurliði Nantes gegn Elverum en Aron og félagar töpuðu Smári Jökull Jónsson skrifar 15. febrúar 2023 19:32 Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Álaborg í kvöld. Vísir/Getty Aron Pálmarsson og félagar í Álaborg töpuðu á útivelli gegn Kielce í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld. Þá var Íslendingaslagur þegar Elverum tók á móti Nantes.
Aron og félagar í Álaborg áttu erfitt verkefni fyrir höndum þegar liðið mætti Kielce á útivelli. Fyrir leikinn í kvöld var Kielce í öðru sæti B-riðils með níu sigra í ellefu leikjum en Álaborg var í fimmta sætinu með níu stig. Jafnt var á flestum tölum í fyrri hálfleik og staðan að honum loknum 15-15. Kielce byrjaði síðari hálfleikinn hins vegar af miklum krafti og var komið í sex marka forskot eftir rúmar tíu mínútur. Þann mun náði danska liðið aldrei að brúa. Kielce hélt þeim í öruggri fjarlægð og vann að lokum fimm marka sigur, lokatölur 33-28. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Álaborg í kvöld en Sebastian Barthold var markahæstur hjá Álaborg með sex mörk líkt og Arkadiusz Moryto skoraði hjá Kielce. Viktor Gísli í leik dagsins.Vísir/Vilhelm Í Noregi tóku Orri Freyr Þorkelsson og félagar á móti Viktor Gísla Hallgrímssyni og samherjum hans í Nantes. Elverum hafði aðeins unnið einn leik í Meistaradeildinni á tímabilinu og var í neðsta sæti B-riðils en Nantes í 3.-4.sæti ásamt Kiel með tólf stig. Það var mikið skorað í leiknum í kvöld og lítið um markvörslu. Nantes leiddi 20-18 í hálfleik en náði fimm marka forskoti snemma í þeim síðari. Þeir héldu forystunni út leikinn og unnu að lokum sex marka sigur, 42-36. Orri Freyr átti góðan leik fyrir Elverum í kvöld og skoraði fimm mörk úr sex skotum. Viktor Gísli átti erfiðan leik og varði aðeins eitt skot.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira